Þóra er 28 ára markaðsgella og ljósmyndari sem ræddi við blaðamann um tískuna, fataskápinn og skemmtileg tískuslys.
Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?
Stíll er svolítið eins og brand guide fyrir fólk, finnst mér. Svipað og tattú, nema það er auðveldara að uppfæra það. Tískan er svo herferðin sem samfélagið er í hverju sinni og ég elska það!
Það að einhver, einhvers staðar úti í heimi, þori að prófa eitthvað nýtt sem verður svo að trendi og jafnvel hluta af okkar eigin stíl er svo skemmtilegt.
Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju?
Klárlega pelsinn minn úr Feldi! Ég var svo sátt þegar það fór að kólna og ég gat loksins farið að nota hann aftur alla daga. Hann er bara svo fullkominn við allt, hvort sem það er kjóll eða hettupeysa.
Mig hafði líka dreymt um hann í fjögur ár og fór svo loksins með bestu vinkonu minni í vor og við keyptum okkur sitt hvorn fyrir útskriftina hennar. Það gerir hann líka að svo góðri minningu.
Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?
Já, eiginlega, ég get eiginlega aldrei ákveðið outfit fyrir fram því það fer alfarið eftir skapinu mínu á þeirri stundu sem ég er að fara að klæða mig.
En svo koma þessir blessunardagar sem ég er fimm mínútur að klæða mig vegna þess að ég er með ný föt, sem margir tengja örugglega við.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?
Núna er hann svolítið „business girl went clubbing after work“. Ég er mikil skellibjalla og dagarnir mínir geta breyst hratt, þannig að ég vil yfirleitt vera í einhverju sem passar við flest tilefni.
Það þarf líka að vera þægilegt og praktískt, sérstaklega ef ég er að mynda, en samt með einhverju smá tvisti.
Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?
Ó guð, já! Ég var mesta strákastelpan hér áður fyrr og safnaði hettupeysum og töffarabuxum. Ég elska enn góða hettupeysu en með tímanum hef ég fundið mig meira í stílhreinum, oversized flíkum og ljósum tónum.
Hvaða flíkur myndirðu segja að einkenni stílinn þinn þessa dagana?
Svartar suit-buxur, skyrtur og flottir jakkar. Ég er líka mikið að vinna með layers þessa dagana því maður veit aldrei hvenær veðrið breytist.
Nýturðu þess að klæða þig upp?
Já, en ég myndi samt ekki segja að ég fari oft all out. Ég vil yfirleitt ekki vera mest overdressed manneskjan í partýinu, en mér finnst mjög gaman að uppfæra lúkkið í eitthvað aðeins fínna eða djarfara.
Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði?
Að mér líði vel og fá þetta litla ego boost inn í daginn þegar allt passar fullkomlega saman.
Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?
Ég held að ég sæki mestan innblástur til vinkvenna minna og fólksins í kringum mig. Það eru svo flottar konur og gaurar í kringum mig sem ég stel reglulega litlum brotum af stílnum frá, ef mér finnst það passa við minn eigin. Svo er Pinterest auðvitað alltaf klassískt!
Ertu með einhver boð og bönn þegar kemur að klæðaburði?
Bara það að líða vel í fötunum og reyna að klæða mig eftir skapinu sem ég vil vera í, sem endurspeglar ekki endilega skapið sem ég er í á þeim tíma. Góður klæðaburður getur nefnilega hjálpað og maður verður einhvern veginn tilbúnari í daginn.
Áttu eitthvað eftirminnilegt tískuslys og hvernig var það?
Guð, já! Þegar ég útskrifaðist í fyrsta skipti árið 2017 langaði mig svo mikið að vera flott en öðruvísi. Ég var í ljósbleikum kjól, kóngabláum gegnsæjum kimono yfir, brúnum skóm og toppurinn á kökunni var vínrauða húfan!
Þetta kenndi mér að stundum er líka bara gott að fara öruggari leiðina.
Ári seinna útskrifaðist ég í svörtum buxum og hvítum blazer. Það segir kannski allt sem segja þarf.
Spilar álit annarra eitthvað hlutverk í þínu fatavali?
Já, sérstaklega álit þeirra sem ég lít upp til þegar kemur að tísku og stíl. Mér finnst gaman að fá þeirra sjónarhorn og innblástur. En annars ekki svo mikið. Enginn er eins, sem betur fer.
Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?
Örugglega rauði, síði leðurjakkinn sem ég fékk lánaðan fyrir afmæli í vor. Ég kíkti til vinkonu minnar sem á endalaust af vintage-fötum, fann þennan jakka og hann bara smellpassaði! Ég dýrka svona augnablik þegar maður finnur einhverja flík sem maður vissi ekki einu sinni að maður væri að leita að.
Hvað finnst þér heitast í tískunni inn í veturinn?
Pelsar! Ég mæli svo mikið með þeim. Það er svo gott að geta verið bæði fín og hlý án þess að þurfa að vera í einhverri risastórri úlpu. Svo elska ég líka að leika mér með layers yfir vetrartímann.
Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar kemur að tísku?
Áslaug Arna kom með svo gott ráð í erindi sem ég hlustaði á um daginn. Það var eitthvað á þá leið að fólk ráðleggur þér oft út frá sínum eigin þægindaramma. Mér finnst þetta eiga svo vel við um tísku líka.
Það sem öðrum finnst of mikið, of skrýtið eða of djarft þarf ekkert að vera það fyrir þig. Ekki láta þægindaramma annarra ráða því hvernig þú klæðir þig!