Rannsóknir benda til að bólusetning gegn ristli geti dregið úr líkum á heilabilun. Ristill er sjúkdómur af völdum sömu veiru og veldur hlaupabólu. Hann leggst helst á eldra fólk og getur valdið varanlegum skaða. Mikil aukning hefur verið á eftirspurn eftir bólusetningu gegn ristli undanfarið.
Ristill er sjúkdómur sem kemur einungis fram hjá þeim sem hafa fengið hlaupabólu. Hlaupabóluveiran hefur þá legið í dvala í taugakerfinu og brýst út sem ristill, en líkurnar á ristli aukast með hækkandi aldri eða þegar starfsemi ónæmiskerfisins raskast.
„Við erum að miða við 60 til 65 ára, sem er mesti áhættuhópurinn til að þróa með sér fylgikvilla, og þeir geta bókað tíma á heilsugæslunni og fengið þessa bólusetningu,“ segir Sólveig Jóhannsdóttir, fagstjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni Efstaleiti. Eftir því sem fólk er eldra þeim mun líklegra er það til þess að fá slæm eftirköst eftir að fá ristil.
60 ára og eldri er ráðlagt að fá bólusetningu gegn ristli í nýjum leiðbeiningum embættis landlæknis. En það er ekki ókeypis.
Bóluefnið kostar 26 þúsund, en til þess að ná fullri virkni þarf að fara tvisvar og ofan á það leggst komugjald, þúsund krónur í hvort sinn.
„Þetta var mikið dýrara,“ segir Sólveig. „Þetta lækkaði um næstum helming frá því í sumar.“
Allt að 20% minni hætta á að þróa með sér heilabilun
Svo virðist sem bóluefnið virki gegn fleiru en ristli. „Það er komið töluvert af rannsóknum núna sem hafa sýnt það að bólusetja einstaklinga virðist hafa verndandi áhrif gagnvart því að þróa með sér heilabilun seinna,“ segir Helga Eyjólfsdóttir, öldrunarlæknir.
Ein rannsóknin var þannig að ákveðinn aldurshópur fékk bólusetningu en annar hópur ekki. „Það virtist vera allt að 20% munur eða minni hætta á að þróa með sér heilabilun hjá þeim sem fengu bólusetningu,“ segir Helga. Aðrar rannsóknir gefa jafnvel enn betri niðurstöður. „Eða allt að jafnvel 50% áhættuminnkun.“
Engin rannsóknanna var þó í formi hefðbundinnar lyfjarannsóknar, þar sem einn hópur fær lyf og annar lyfleysu. Helga segir að til þess að fá marktæka niðurstöðu þurfi rannsókn að byggja á slíkum grunni. Þangað til sé ekki tímabært að taka upp ristilbólusetningar beinlínis í þeim tilgangi að koma í veg fyrir heilabilun.
En hvort sem bóluefnið veitir raunverulega slíka vörn eða ekki, segir hún ráðlegt að bólusetja sig til þess að koma í veg fyrir ristil. „Að fá ristil og fá ristilútbrot getur verið stórmál, þetta geta verið ótrúlega krefjandi einkenni, getur haft langvinn verkjavandamál meðal annars í för með sér, þannig að það er mín skoðun að þá eigi bara af þeim völdum að bjóða eldra fólki, eða fólki yfir ákveðinn aldur, upp á ristilbólusetningar.“
Fleiri skammtar seldir á þremur mánuðum en á tæpum sex árum
Samkvæmt tölum frá Lyfjastofnun hefur fjöldi bólusetninga aukist gríðarlega undanfarna mánuði. Bóluefnið, sem heitir Shingrix, var fyrst einungis fáanlegt sem undanþágulyf og var í takmarkaðri dreifingu. Frá 2021 til 2024 voru samtals 166 skammtar seldir á ári. Árið 2025 jókst eftirspurnin verulega, en þá voru 434 skammtar seldir. Fram til maí á þessu ári voru seldir skammtar 902, en í júní var bóluefnið markaðssett og ekki þurfti lengur undanþágu til að kaupa það. Á þremur mánuðum, frá júní og út ágúst, voru 1602 skammtar seldir, eða fleiri skammtar en öll hin árin til samans.