Doktor í félagstölfræði segir að sé litið til sögunnar sé flokki sitjandi forseta oftar en ekki refsað í þingkosningum en Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu næsta þriðjudag. Afstaða kjósenda til Trumps Bandaríkjaforseta verði neikvæðari með degi hverjum samkvæmt mælingum.
„Auðvitað er einn maður sem vofir yfir þeim, það er Donald Trump. Hann er búinn að lita stjórnmál Bandaríkjanna og heimsins alls í áratug. Og þegar kemur að þessum kosningum, svona seint á seinna kjörtímabili, þá er trendið að flokki forseta sé refsað,“ segir Hafsteinn Einarsson, doktor í félagstölfræði. Rætt var við hann í Kastljósþætti kvöldsins.
Afstaða kjósenda til Trumps versni með degi hverjum
„Nú er efnahagsástandið ekkert sérstakt. Hann var kosinn til þess að takast á við verðbólguna. Þar að auki hefur hann átt í átökum í Íran, sem hefur ekki hjálpað til við verðbólguna. Hann lofaði ýmsu fyrir tveimur árum sem hann hefur staðið mismikið við og stemningin fyrir honum virðist vera að súrna ansi mikið.“
Hafsteinn segir allar mælingar benda til þess að afstaða kjósenda til hans hafi orðið verulega neikvæð. Með hverjum deginum komi ný mæling sem sýni enn meiri óvinsældir.
„Þetta er mjög algengt á seinni hluta þessara þingkosninga, á miðju seinna kjörtímabili er mikil refsing,“ segir Hafsteinn.
„Og nærtækasta dæmið væri að líta til 2006. Þá var George Bush búinn að vera í stríði í Írak. Það eru veruleg varúðarmerki varðandi stöðu efnahagsmála og allt komið í lás. Og það er margt svipað við þessar kosningar. Nema að persónuleiki Trumps er þannig að það magnast allt upp.“