Samkvæmt yfirlýsingunni er stefnt að því að yfirfærslu Þristsins til safnsins verði lokið fyrir lok þessa árs. Aðilar lýsa sig sammála um mikilvægi þess að tryggja að flugvélin verði áfram varðveitt sem einstakur gripur í íslenskri flugsögu og verði aðgengileg almenningi í faglegri vörslu. Þristurinn skipi stóran sess í flugsögu Íslands og hafi hátt sýninga- og varðveislugildi.
Flugvélin kom ný til landsins árið 1943 á vegum Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Flugfélag Íslands keypti vélina árið 1946 og fékk hún þá nafnið Gljáfaxi. Hún var fyrsta stóra flugvél í eigu Íslendinga og var notuð í innanlandsflugi, sem og flugi til Grænlands og Norðurlanda.
Árið 1972 ákvað Flugfélagið að gefa Landgræðslu ríkisins flugvélina til landgræðslustarfa og fékk hún nafnið Páll Sveinsson. Landgræðslan var skráður eigandi vélarinnar frá árinu 1973 en notkun hennar við landgræðslustörf var hætt 2006.
Þristavinafélagið var stofnað árið 2005 og hefur það haft umsjá með Þristinum frá þeim tíma. Flugvélin hefur verið hýst í Flugsafni Íslands á Akureyri frá árinu 2008 á grunni hýsingarsamnings milli Þristavinafélagsins og safnsins.
Eignarhald vélarinnar færðist árið 2011 yfir á Þristasjóðinn, sem gagngert var stofnaður um eignarhald og varðveislu Þristsins. Afnota- og lánssamningur var sama ár gerður um vélina á milli Þristasjóðs og Þristavinafélagsins.
„Í ljósi þess að vélinni hefur ekki verið flogið frá árinu 2019 og er nú fyrst og fremst safngripur á jörðu niðri, er sameiginlegur ásetningur aðilanna að leggja Þristasjóð formlega niður og færa eignarhald og ábyrgð á flugvélinni til Flugsafns Íslands,“ segir í yfirlýsingunni.
Hér má sjá hana á flugi sumarið 2017:
„Flugsafn Íslands og Þristavinafélagið kanni áframhaldandi aðkomu félagsins að varðveislu Þristsins sem faglegur stuðnings- og hollvinaaðili,“ segir ennfremur.
Ríkisstofnunin Land og skógur þarf að samþykkja eignatilfærsluna þar sem gildandi skipulagsskrá kveður á um að vélin skuli ganga til Landgræðslu ríkisins við slit Þristasjóðs. Þá gæti þurft að afla heimildar Alþingis í fjáraukalögum fyrir ráðstöfun vélarinnar.
Yfirlýsinguna undirrituðu Sveinn Runólfsson, formaður stjórnar Þristasjóðs, Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands, Tómas Dagur Helgason, formaður stjórnar Þristavinafélagsins, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Ágúst Sigurðsson, forstjóri Lands og skógar.