Erin Patterson, áströlsk kona sem var dæmd í lífstíðarfangelsi á síðasta ári fyrir þrefalt morð, tapaði áfrýjun á máli sínu í dag.
Patterson komst í heimsfréttirnar árið 2023 þegar hún var handtekin vegna gruns um að hún hefði eitrað fyrir tengdaforeldrum sínum, Don og Gail Patterson, og systur tengdamóður sinnar, Heather Wilkinson, með grænserki.
Sveppurinn, sem heitir death cap á ensku, er einn sá eitraðasti í heimi og Patterson matreiddi hann í innbakaðri Wellington-steik sem hún matreiddi fyrir tengdafólkið.
Hún var einnig fundin sek um tilraun til morðs á eiginmanni frænkunnar sem lést, séra Ian Wilkinson. Hann innbyrti sveppinn líka en lifði af eftir margar vikur á spítala.
Sagðist hafa notað grænserk fyrir slysni
Patterson sagði gestunum að ástæðan fyrir matarboðinu væri að hún hefði greinst með krabbamein og þyrfti aðstoð við að ákveða hvernig best væri að segja þeim fréttirnar.
Verjendur Patterson sögðu það rétt að hún hefði greinst með krabbamein, en málsvörnin byggðist á því að hún hefði sett sveppina í Wellington-steikina fyrir slysni.
Patterson hefur alltaf neitað sök og tilefni morðanna er enn þá á huldu. Hún hafði að vísu slitið samvistum við eiginmann sinn, Simon Patterson, og höfðu þau átt í meðlagsdeilu. Honum var einnig boðið í matarboðið en hann afboðaði komu sína. Aldrei hefur fyllilega legið fyrir af hverju Patterson vildi líka eitra fyrir foreldrum hans og skyldfólki.
Í vitnisburði sínum greindi eiginmaðurinn hins vegar frá grunsemdum um að kona hans hefði gert margar tilraunir til að eitra fyrir sér. Hann sagðist oft hafa veikst eftir mat sem hún eldaði og í eitt skipti endaði hann á sjúkrahúsi og sögðu læknar hans á tímabili að hann væri í bráðri lífshættu.
Felldu úr gildi möguleika á reynslulausn
Patterson ákvað að áfrýja málinu og lögfræðingar hennar staðhæfðu að fyrri málsmeðferð hefði verið ábótavant. Krafa var gerð um að Patterson yrði látin laus eða að málið yrði tekið upp að nýju.
Áfrýjunardómstóllinn í Viktoríufylki hafnaði hins vegar beiðninni. Í dómsúrskurðinum segir að morðin hafi greinilega verið vandlega skipulögð og að engin ástæða sé til að taka málið upp að nýju. Dómstóllinn lét það þó ekki nægja, heldur ákvað einnig að þyngja dóminn.
Samkvæmt fyrri dómi hefði Patterson getað sótt um reynslulausn eftir þrjátíu og þrjú ár en áfrýjunardómstóllinn taldi það ekki samræmast alvarleika brotsins og felldi möguleika á reynslulausn úr gildi. Líklegt er að Patterson muni þar með verja því sem hún á eftir ólifað í öryggisfangelsi.