Einn er látinn eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás í Kíev, höfuðborg Úkraínu. Vitali Klitschko borgarstjóri greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Telegram í gærkvöldi.
Í borginni Dnipro þar sem um milljón manns býr voru 350 þúsund þeirra án rafmagns eftir að árásir Rússa hæfðu orkuinnviði. Að minnsta kosti 14 manns létust í drónaárás sem hæfði lestarstöð í borginni fyrr í gær.
Skömmu síðar voru árásir einnig gerðar á bæina Chernihiv og Kremenchuk.