Ítalskir námsmenn ætla að safnast saman í nokkrum borgum í dag og krefjast aukins fjármagns til skólamála, sem og stuðnings við húsnæðismál. Löggæsluyfirvöld undirbúa sig með möguleg átök í huga.
Námsmenn á Ítalíu hafa mótmælt í margar vikur. Víða hefur tjaldbúðum verið slegið upp, og skólar verið umsetnir í þeirri viðleitni unga fólksins að koma kröfum sínum á framfæri.
Það minnir um margt á heyfingar nemenda handan landamæranna í Frakklandi en á Ítalíu hafa fleiri hópar skundað af stað með slagorð á lofti. Vörubílstjórar og bændur kalla líka eftir aðgerðum vegna mikillar hækkunar á eldsneytisverði og framfærslukostnaði.
Hafa hert löggjöf um samkomur
Búist er við mikilli þáttöku í dag en nemendur ætla að loka skólum og tæma þá af nemendum áður en haldið er út á götur borganna. Þeir ætla að mótmæla vígbúnaðarstefnu stjórnvalda og niðurskurði í kennslumálum.
Yfirvöld hafa áhyggjur af því að vegna fjölda muni mótmælin snúast upp í óeirðir og hefur lögregla undirbúið sig samkvæmt því. Til að bregðast við mótmælunum hefur ríkisstjórn Giorgiu Meloni jafnframt slakað á reglum um gæsluvarðhald á ólögráða einstaklingum og hert löggjöf um samkomur.
Samþykktu aðgerðapakka
Í síðustu viku samþykkti ítalska ríkisstjórnin 175,2 milljóna evra aðgerðapakka fyrir vörubílstjóra, bændur og sjómenn sem hafa orðið fyrir barðinu á hækkandi eldsneytisverði í kjölfar stríðsins í Miðausturlöndum.
Í drögum að fjárlögum fyrir árið 2027 sem nú eru til umræðu á þinginu er einnig gert ráð fyrir aðgerðum í þágu ungs fólks og fjölskyldna. Meðal aðgerðanna er 2.500 króna árleg greiðsla til launafólks yngra en 30 ára.
Aðgerðirnar taka þó ekki á öllu því sem unga fólkið krefst, en töluverðrar innspýtingar er einnig þörf í ítalska skólakerfið.