Hildigunnur Árnadóttir varaformaður Velferðar, samtaka stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga á Íslandi, segir ríkið hafa brugðist skyldu sinni við að tryggja viðeigandi búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Einkaaðilar hafi svarað eftirspurninni og sumir þeirra bjóði upp á aðstæður sem séu óviðunandi.
Stjórn Velferðar er fyrst og fremst harmi slegin yfir þeim óviðunandi aðstæðum sem lýst var í umfjöllun Kveiks um aðbúnað barna í einkareknum búsetu- og vistunarúrræðum.
„Velferð vildi koma því á framfæri að notkun einkarekinna úrræða hefði að líkindum ekki komið til ef ríkið hefði haft trygg úrræði fyrir börn með fjölþættar áskoranir, líkt og því ber ótvíræð skylda til.“
Skapaðist tæifæri fyrir einkarekin búsetuúrræði
Hún segir að þó að mörg einkarekin búsetuúrræði hafi reynst vel liggi það fyrir að ríkið hafi brugðist sinni lögbundnu skyldu að tryggja viðeigandi búsetuúrræði fyrir börn sem ekki geta búið á heimilum sínum vegna fjölþættra áskorana.
„Það liggur fyrir og af þeim sökum skapaðist þarna í raun og veru tækifæri á markaði fyrir einkaaðila til að bjóða upp á þessi úrræði.“
Ábyrgðina segir Hildigunnur þó vera sameiginlega og að sveitarfélögin skorist ekki undan sinni ábyrgð. Samvinna sé lykilatriði.
„Meginatriðið er að ríki og sveitarfélög eigi uppbyggilega samvinnu um að tryggja börnum í viðkvæmri stöðu þann stuðning og þjónustu sem þau þurfa og eiga skilið. Umræðan þarf að einkennast af umhyggju fyrir þessum börnum og fjölskyldum þeirra.“