Alphabet, móðurfélag Google, tapaði um hálfri billjón bandaríkjadala í markaðsvirði sínu á hlutabréfamarkaði í vikunni. Það er um 61 billjón íslenskra króna, en ein billjón er þúsund milljarðar.
Lækkun þessi er rakin til vaxandi áhyggna fjárfesta af áhrifum gervigreindar á rekstur fyrirtækisins og aukins kostnaðar við þróun hennar. Hlutabréf fyrirtækisins féllu eftir að fjárfestar brugðust við auknum útgjöldum þess til uppbyggingar gervigreindarinnviða.
Alphabet hefur tilkynnt að það muni verja rúmlega 200 milljörðum bandaríkjadala í fjárfestingar á næstu misserum og að aukið púður verði lagt í gagnaver og tölvubúnað til þess að mæta aukinni eftirspurn eftir gervigreindarnotkun.
Fjárfestar áhyggjufullir
Stöðugt eykst samkeppnin á gervigreindarmarkaði. Fyrirtæki á borð við OpenAI sem og önnur tæknifyrirtæki hafa þróað tækni sem gæti breytt því hvernig fólk leitar sér upplýsinga á netinu og þar með ógnað yfirburðastöðu Google sem leitarvél.
Fjárfestar virðast því hafa áhyggjur af þessum miklu fjárfestingum Google og hvort þær muni skila nægum tekjum til fyrirtækisins þegar öllu er á botninn hvolft.