Finnska lögreglan hefur hafið sakamálarannsókn vegna uppbyggingar Google á gagnaverum í landinu. Grunur er um að umhverfislög hafi verið brotin við framkvæmdina.
Verkefnið er hluti af áætlun sem Google kynnti í síðasta mánuði og felur í sér 13 milljarða evra fjárfestingu í innviðum fyrir gervigreind í Finnlandi. Google segir þetta vera stærstu fjárfestingu sína í Evrópu til þessa.
Þegar framkvæmdir hófust lét Tuike Finland, dótturfélag Google, ryðja skóg og ræsa fram land á fyrirhuguðu uppbyggingarsvæði nálægt bænum Muhos í vestanverðu Finnlandi. Þá hafði umhverfismat hins vegar ekki farið fram eins og finnsk lög gera ráð fyrir.
Kari Pakanen yfirlögregluþjónn segir í samtali við Reuters að verið sé að rannsaka hvort starfsemi fyrirtækisins hafi brotið gegn vatnalögum og valdið umhverfistjóni. Hann bætir því við að ef fyrirtækið er fundið brotlegt gæti það átt von á sekt.
Forsætisráðherrann fagnaði fjárfestingunni
Fjárfestingaráætlanir Google í Finnlandi fela meðal annars í sér uppbyggingu gagnavera, endurbætur á raforkukerfinu, sem og þróun verkefna um hreina orku og rafhlöðulausnir. Þessar lausnir eiga að tryggja orku sem getur knúið þjónustur fyrirtækisins á borð við gervigreindarlausnina Gemini, Google-leitina, Google-kort og YouTube.
Í síðasta mánuði lýsti Petteri Orpo forsætisráðherra Finnlands fullum stuðningi við áætlanir Google og sagði þær styrkja efnahag landsins. Hann blés á áhyggjuraddir sem telja að uppbygging gagnavera gæti sogað til sín orku og ýtt undir hækkun raforkuverðs.
Þess má geta að Alphabet, móðurfélag Google, tapaði um hálfri billjón bandaríkjadala af markaðsvirði sínu á hlutabréfamarkaði í vikunni. Lækkunin er rakin til vaxandi áhyggja fjárfesta af því hvað kostnaður við þróun gervigreindar hefur aukist.