Íbúar á vestanverðu landinu geta búið sig undir skúraleiðingar í dag. Norðan og austan til verður þurrt og sést meira að segja til sólar á köflum. Á morgun versnar veður nokkuð með meiri vindi og kaldara veðri.
Vegagerðin er að kanna aðstæður. Hálkublettir eru víða á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir að víðar sé hálka á vegum.
Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:
Sunnan 5-13 metrar á sekúndu og skúraleiðingar vestantil í dag, annars þurrt og bjart með köflum fyrir norðan og austan. Hiti 2 til 8 stig.
Suðvestanlægari, heldur hvassari, skúrir eða jafnvel slydduél af og til á morgun og ívið svalari. Áfram þurrt að kalla á Norðaustur- og Austurlandi.