Skemmti­leg leið til að halda minningunni á lífi - Vísir

Skemmti­leg leið til að halda minningunni á lífi - Vísir

Skemmti­leg leið til að halda minningunni á lífi - Vísir

Yfirskrift sýningarinnar, „Alltílagi bless“ er setning sem Magnús notaði iðulega sem svar við alls konar og engu. 

Vala Rún er fædd árið 1996 og starfar sjálf í skapandi geiranum en það sama á við um Davíð Stein yngri bróður hennar sem er fæddur 2005. Hún, móðir hennar Bjarnveig Sigríður Guðjónsdóttir og Davíð Steinn standa að sýningunni Allt í lagi bless ásamt þremur vinum föður hennar, Svenna Speight, Pétri Thomsen og Gauja litla.

Magnús, faðir Völu, á fallega fjölskylduheimilinu.Aðsend

Best að vera heima í Víðihlíð

Blaðamaður ræddi við Völu um þessa yfirlitssýningu á verkum föður hennar sem verður haldin á fjölskylduheimilinu, Víðihlíð 12, næstkomandi laugardag klukkan 16:00 og er opin öllum áhugasömum. Sýningin stendur aðeins í einn dag. 

„Pabbi var veikur lengi áður en hann lést og maður vissi svolítið hvað var að fara að gerast. Hann dó 2020, á Covid tímum, og það var ekki hægt að halda hefðbundna jarðaför og erfidrykkju. Mamma sagði þá að við gætum minnst hans seinna með ljósmyndasýningu. Svo leið tíminn, segir Vala Rún og bætir við: 

„Pabbi var ljósmyndari sem vann innan listageirans, vann mikið með listamönnum og var mjög fjölhæfur. 

Hann hefði orðið sjötugur 22. október síðastliðinn og tímamótin ýttu okkur svolítið áfram í að láta verða af sýningu. Við höfðum aðeins miklað þetta fyrir okkur, mamma var með ákveðinn sal í huga en svo small allt þegar mamma stakk upp á því að halda sýninguna bara heima í Víðihlíðinni.“

Magnús Reynir var afkastamikill ljósmyndari og listamaður.Aðsend

Vala var þriggja mánaða þegar hún flutti á æskuheimili sitt þar sem móðir hennar býr enn. Húsið er stór hluti af fjölskyldunni sem hefur fagnað fjölda tímamóta þar.

„Mamma og pabbi giftu sig heima, við systkinin vorum skírð heima og við elskum öll þetta hús. Því sagði mamma að það væri alveg í okkar anda að halda sýninguna heima. Pabbi var með stúdíó heima og myrkraherbergi í kjallaranum fyrir framköllun þannig að heimilið var í raun stór hluti af honum sem listamanni.“

Magnús Reynir vann mikið heima í Víðihlíðinni og er vel við hæfi að yfirlitssýningin verði haldin þar.Aðsend

Auðvitað mjög persónulegt

Magnús skildi eftir sig gríðarlegt arkíf af verkum og hefur því mikill tími farið í undirbúning.

„Mamma er búin að hreinsa stofuna alveg, taka öll listaverkin af veggjunum og móta svolítið hvað það sé sem við viljum sýna. Við erum nokkur saman að undirbúa þetta og auðvitað er þetta mjög persónulegt, mamma er að opna heimilið sitt. Þetta verður svolítil yfirlitssýning á öllum hans verkum, með blöndu af persónulegum fjölskyldumyndum við alls kyns önnur verk.“

Magnús Reynir tók mikið af portret myndum og alls kyns myndir af fólki á sínum ferli.Magnús Reynir Jónsson

Fjölskyldan hefur haft mjög gaman að því að vinna að þessu saman. 

„Þegar pabbi byrjaði þá var allt handunnið á pappír og það er svo mikið af fisískum verkum frá honum sem hann hefur framkallað á pappír, handskrifað á og skilið svolítið áþreifanlega eftir. Hann fór í gegnum alls konar tækninýjungar á sínum ferli, sem var mjög fjölbreyttur og það lýsti honum vel.“

Magnús Reynir gerði meðal annars ljósmyndaseríuna Fossar í firði sem hann vann með Birgi Andréssyni. Magnús Reynir Jónsson

Maggi millimeter

Vala Rún segir að hann hafi oft verið kallaður Maggi millimeter vegna nákvæmni sinnar í starfi.

„Hann hafði rosalega sterka sýn og sitt einkenni á öllu og vissi upp á hár hvernig hann vildi hafa hlutina. Mamma er búin að fara í gegnum filmur og prent undanfarin ár og nú var einhvern veginn rétti tíminn til að gera eitthvað með þetta. 

Tímamótin spila líka inn í, að hann hefði orðið sjötugur núna, og sömuleiðis eru margir sem hann þekkti á lífsleiðinni búnir að vera að spyrja hvað hafi orðið um öll verkin hans. Í seinni tíð vann pabbi mikið í auglýsingum og hafði ekki sett upp mikið af sýningum í seinni tíð.“

Feðginin Vala Rún og Magnús Reynir.Aðsend

Fjölskyldan ætlar sömuleiðis að vera með prent til sölu á sýningunni sem fólk getur tekið með sér heim. 

„Það eru margir sem tengdust honum að einhverju leyti spenntir að sjá þetta, allt frá vinum mínum sem muna eftir honum frá því þau voru lítil yfir í gamla kollega. Þetta verður góð samvera, í staðinn fyrir að halda afmæli þá fögnum við arfleifð hans á skemmtilegan hátt.“

Það hefur verið viðamikið verkefni að fara yfir allt arkíf Magnúsar Reynis.Vísir/Anton Brink

Verðmætt að kynnast nýjum hliðum föður síns

Vala Rún segir líka ómetanlegt að fá að kynnast föður sínum betur sem listamanni.

„Það er allt öðruvísi og ótrúlega skemmtilegt fyrir mig núna sem fullorðinn einstaklingur að skoða þessi verk. Hann var frábær pabbi og ég man svo vel eftir honum í tökum og að vinna alls kyns verkefni en ég fattaði samt ekkert hvað hann var að gera. 

Ég er svolítið að uppgötva hann á annan hátt núna, við systkinin erum bæði í skapandi bransa og það er svo kúl að sjá hvað hann gerði mikið af flottum og skemmtilegum verkum. Ég fæ að upplifa hann núna sem ljósmyndarann og listamanninn sem maður skildi ekki sem barn og kann svo vel að meta í dag,“ segir Vala Rún brosandi en hún hefur lengi unnið sem framleiðandi og tekur við stöðu verkefnastjóra hjá Iceland Innovation Week að loknu fæðingarorlofi.

Davíð Steinn er líka 21 árs í dag og vinnur núna sem hönnuður hjá Coppermine. 

„Þetta ferli hefur verið mjög gefandi fyrir hann og hann var ótrúlega peppaður að gera til dæmis plakatið fyrir sýninguna.

Þetta hefur verið skemmtilegt og gefandi fyrir okkur fjölskylduna og það er verðmætt að fá að sýna fólki smá brot úr þessari listrænu arfleifð hans,“ segir hún að lokum.

Systkinin Vala Rún og Davíð Steinn ásamt föður þeirra Magnúsi Reyni.Aðsend

Hér að neðan má lesa stutta yfirferð á ferli Magnúsar úr fréttatilkynningu:

Magnús Reynir Jónsson, ljósmyndari. (22.10.1956 – 28.08.2020)

„Magnús byrjaði að kynna sér heim ljósmyndunar þegar hann bjó sem unglingur 13 ára gamall á Siglufirði. Hann vann í þessu með vini sínum Róberti Guðfinns. Fljótlega voru þeir komnir með aðstöðu í þvottahúsinu heima hjá Magnúsi, skápur var notaður til að þurrka filmur, þvottasnúrur fyrir pappír og fjárfest í pappírspressu. 

Til að kynnast faginu höfðu þeir erlendar fagbækur og tímarit, þannig komust þeir í snertingu við fagið og gerðu ýmsar tilraunir með mismunandi filmur, pappír og framköllunarefni. Ýmislegt var lagt á sig til að fjármagna áhugamálið, enda pappír, filmur og annað efni dýrt. M.a. tóku þeir myndir í nafnskírteini fyrir bæjarbúa þar sem engin ljósmyndastofa var í bænum.

Magnús lagði ljósmyndun fyrir sig og fór í háskólanám til Bretlands í ljósmyndun í Bournemouth Poole College of Art & Design og útskrifaðist þaðan með BA í ljósmyndun árið 1984.

Magnús var mjög fjölhæfur ljósmyndari. Hann vann sem blaðaljósmyndari m.a. fyrir Helgarpóstinn og Húsfreyjuna, við auglýsingamyndatökur fyrir hin ýmsu fyrirtæki og auglýsingastofur, m.a. Ikea, NTV og Nýherja, hann var ljósmyndari á setti í kvikmyndum m.a. Kaldaljós (Íslenska kvikmyndasamsteypan 2004) og „The One Who Made It Rain“ (Vala kvikmyndir ehf. 2011), hann tók fjölskyldumyndir og mannlífsmyndir (Seyðisfjarðarserían) og á seinni árum vann hann töluvert með myndlistarmönnum. Áhugi hans lá í mannlífsmyndum, Still’s, Pin hole og Camera obscura.

Sýningin Allt í lagi bless opnar á laugardaginn klukkan 16:00.

Samstarf við listamenn:

Magnús vann töluvert með listamönnum. Mest vann hann með Birni Roth fyrir Dieter Roth estate, með og fyrir Birgi Andrésson og fyrir Pétur Magnússon.

Magnús var meðlimur í Dieter Roth Academy frá stofnun og var síðar skráður prófessor í henni.“

#halda #leið #minningunni #skemmtileg #til


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262955418d/skemmti-leg-leid-til-ad-halda-minningunni-a-lifi

📰 Aðrar fréttir

Yfir 3500 látnir af völdum mengunar í september
📅 30.10.2026 👁️ 2
Yfir 3500 látnir af völdum mengunar í september
Áætlað er að um yfir 3500 manns hafi látist í Indónesíu í september vegna mengunar af völdum skógarelda sem geisað hafa í landinu.Menguninni fylgja ag...
Mikil­vægt að styggja fólk ekki með orða­lagi - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Mikil­vægt að styggja fólk ekki með orða­lagi - Vísir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er næsti gestur í Sætinu. Við tökum á móti honum í Smiðju, húsi sem hann hefur reyndar verið mjög g...
Tíðni ákæra hjá sómölskum ríkisborgurum u.þ.b. áttföld á við Íslendinga – Tíðni MENAPT borgara einnig mun hærri
📅 30.10.2026 👁️ 1
Tíðni ákæra hjá sómölskum ríkisborgurum u.þ.b. áttföld á við Íslendinga – Tíðni MENAPT borgara einnig mun hærri
Tíðni ákæra á hendur ríkisborgurum Afríkuríkja var 3,77 til 6,59 sinnum tíðni Íslendinga árin 2019 til 2024, miðað við íbúafjölda á aldrinum 15 til 64...
Gervigreindin sá í gegnum blekkinguna – Málverkið hafði verið týnt í tvo áratugi
📅 30.10.2026 👁️ 1
Gervigreindin sá í gegnum blekkinguna – Málverkið hafði verið týnt í tvo áratugi
Ítalska lögreglan hefur náð eftirtektarverðum árangri í baráttunni gegn þjófnaði á listaverkum með aðstoð gervigreindar. Þannig tókst til dæmis að haf...
Hagnaður Krónunnar jókst um 500 milljónir en afkoma N1 versnaði
📅 30.10.2026 👁️ 1
Hagnaður Krónunnar jókst um 500 milljónir en afkoma N1 versnaði
Hagnaður Krónunnar jókst um 500 milljónir en afkoma N1 versnaði Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum mi...
FRIDAY WEATHER:  Cloudy skies and fading calima across the Canary Islands
📅 30.10.2026 👁️ 1
FRIDAY WEATHER: Cloudy skies and fading calima across the Canary Islands
The Canary Islands can expect a mixture of high and low cloud this Friday, 30th October, with some lingering calima giving the sky a hazy appearance, ...
Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael - Vísir
Þá hlutu arabaflokkarnir svonefndu 19 þingsæti og stórjuku fylgi sitt. Þannig er ljóst að hvorki bandalag Netanyahu né Eisenkot-liðar hefðu unnið meir...
Lögreglurannsókn hafin vegna framkvæmda Google
📅 30.10.2026 👁️ 2
Lögreglurannsókn hafin vegna framkvæmda Google
Finnska lögreglan hefur hafið sakamálarannsókn vegna uppbyggingar Google á gagnaverum í landinu. Grunur er um að umhverfislög hafi verið brotin við fr...
Blautt vestan til en bjartara fyrir norðan og austan
📅 30.10.2026 👁️ 1
Blautt vestan til en bjartara fyrir norðan og austan
Íbúar á vestanverðu landinu geta búið sig undir skúraleiðingar í dag. Norðan og austan til verður þurrt og sést meira að segja til sólar á köflum. Á m...
UK weather: hazardous driving conditions as fog warning issued by Met Office
📅 30.10.2026 👁️ 1
UK weather: hazardous driving conditions as fog warning issued by Met Office
Foggy conditions likely to bring tricky conditions for the Friday morning commute as severe weather warning issued.
Syrians grow frustrated as soaring living costs threaten recovery
📅 30.10.2026 👁️ 2
Syrians grow frustrated as soaring living costs threaten recovery
Fuel price rises are driving discontent, testing support for Ahmed al-Sharaa's government.
Nína Richter skrifar: Enginn fátækur í faginu
📅 30.10.2026 👁️ 2
Nína Richter skrifar: Enginn fátækur í faginu
Mynd Ég er komin til Búdapest í annað sinn.
Námsmenn tæma skóla í dag og lögregla býst við óeirðum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Námsmenn tæma skóla í dag og lögregla býst við óeirðum
Ítalskir námsmenn ætla að safnast saman í nokkrum borgum í dag og krefjast aukins fjármagns til skólamála, sem og stuðnings við húsnæðismál. Löggæsluy...
Milljörðum sennilega stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
📅 30.10.2026 👁️ 2
Milljörðum sennilega stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, varð fyrir umfangsmikilli tölvuárás og hefur kauphöllin fryst fjármagn upp á 2,5 milljarða bandaríkjadala til...
Milljörðum stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
📅 30.10.2026 👁️ 2
Milljörðum stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, hefur orðið fyrir umfangsmikilli tölvuárás og þjófnaði.Kauphöllin staðfesti í morgun að það fjármagn sem tölv...
Einn látinn í eldflaugaárás í Kíev
📅 30.10.2026 👁️ 4
Einn látinn í eldflaugaárás í Kíev
Einn er látinn eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás í Kíev, höfuðborg Úkraínu. Vitali Klitschko borgarstjóri greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Tele...
Einn látinn í eldflaugaárás í Kyiv
📅 30.10.2026 👁️ 3
Einn látinn í eldflaugaárás í Kyiv
Einn er látinn eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás í Kyiv, höfuðborg Úkraínu. Vitali Klitschko borgarstjóri greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Tele...
Hafna áfrýjunarbeiðni sveppamorðingjans og þyngja dóminn
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hafna áfrýjunarbeiðni sveppamorðingjans og þyngja dóminn
Erin Patterson, áströlsk kona sem var dæmd í lífstíðarfangelsi á síðasta ári fyrir þrefalt morð, tapaði áfrýjun á máli sínu í dag.Patterson komst í he...
Democrats have an identity crisis - it won't be an easy fix
📅 30.10.2026 👁️ 3
Democrats have an identity crisis - it won't be an easy fix
Whatever the result of the midterm elections, the party is facing tough questions over what they stand for and who should represent them.
Talningu lokið og strembin stjórnarmyndun fram undan
📅 30.10.2026 👁️ 4
Talningu lokið og strembin stjórnarmyndun fram undan
Öll atkvæði hafa verið talin í Ísrael. Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, fékk 27 þingsæti og stjórnarblokk hans er með alls 53 sæti...
Erin Patterson: Australian mushroom murderer loses appeal to overturn convictions
📅 30.10.2026 👁️ 4
Erin Patterson: Australian mushroom murderer loses appeal to overturn convictions
Erin Patterson argued her trial was unfair due to seven grounds but three appeal judges dismissed them all.
Biggest fibre boost could be scraps in your bin, experts say
📅 30.10.2026 👁️ 4
Biggest fibre boost could be scraps in your bin, experts say
Chomping on vegtable skins, seeds and stalks could give us vital fibre, say food scientists.
Crypto giant Binance freezes $2.5bn of assets over suspected hack
📅 30.10.2026 👁️ 6
Crypto giant Binance freezes $2.5bn of assets over suspected hack
The firm said transactions are suspended while it conducts security checks and will "cover all losses".
Crypto worth billions frozen after suspected Binance hack
📅 30.10.2026 👁️ 4
Crypto worth billions frozen after suspected Binance hack
The firm said transactions are suspended while it conducts security checks and will "cover all losses".
Binance says crypto worth $6.3bn impacted in suspected hack
📅 30.10.2026 👁️ 2
Binance says crypto worth $6.3bn impacted in suspected hack
The firm said roughly $3bn in assets have been frozen and that it will 'cover all losses'.
Crypto giant Binance hit by 'largest hack in history'
📅 30.10.2026 👁️ 2
Crypto giant Binance hit by 'largest hack in history'
The world's biggest crypto exchange said $6.3bn of digital assets had been impacted by the incident.
Crypto giant Binance hit by hack suspected to be largest in history
📅 30.10.2026 👁️ 2
Crypto giant Binance hit by hack suspected to be largest in history
Two analytics firms have attributed the incident to a North Korean hacking unit called TraderTraitor.
Hlutabréf móðurfélags Google lækka um 12%
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hlutabréf móðurfélags Google lækka um 12%
Alphabet, móðurfélag Google, tapaði um hálfri billjón bandaríkjadala í markaðsvirði sínu á hlutabréfamarkaði í vikunni. Það er um 61 billjón íslenskra...
Serbia: Student-backed election winners demand sweeping resignations
📅 30.10.2026 👁️ 6
Serbia: Student-backed election winners demand sweeping resignations
Days after ousting Aleksandar Vučić's party from power, Student List MPs call for top figures to stand down.
Stað­festa tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorra­blót - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Stað­festa tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorra­blót - Vísir
Maðurinn var fyrst sakfelldur í Héraðsdómi Austurlands í desember 2025, þar sem hann var ákærður fyrir nauðgun með því að hafa í gestaherbergi á heimi...
The Traitors: Bombshell confession as faithfuls finally turn the screw
📅 29.10.2026 👁️ 3
The Traitors: Bombshell confession as faithfuls finally turn the screw
Could the faithfuls finally come good in Thursday's penultimate episode?
Hyrox athlete who soiled herself in race admits putting others at risk but says backlash was traumatic
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hyrox athlete who soiled herself in race admits putting others at risk but says backlash was traumatic
In her first interview since the incident, Joanna Wietrzyk told the BBC she takes responsibility for it but did not deserve such a severe backlash.
Sir Patrick Stewart er látinn
📅 29.10.2026 👁️ 3
Sir Patrick Stewart er látinn
Enski leikarinn Sir Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri. Stewart lést á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum á miðvikudag.„Í stað blóma e...
Skjal undirritað af Davíð Oddssyni bjargaði Didda í Sovétríkjunum: „Ég ákvað að við værum bara að beita leynivopni og drógum upp þetta plagg“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Skjal undirritað af Davíð Oddssyni bjargaði Didda í Sovétríkjunum: „Ég ákvað að við værum bara að beita leynivopni og drógum upp þetta plagg“
Hestur sprakk framan á hljómsveitarbíl, biðröð myndaðist fyrir utan Gauk á Stöng á sunnudagskvöldum, bréf frá borgarstjóra bjargaði manni í Sovétríkju...
Sérstaklega hættuleg líkamsárás: Kastaði glerglasi í höfuð brotaþola á Veður
📅 29.10.2026 👁️ 2
Sérstaklega hættuleg líkamsárás: Kastaði glerglasi í höfuð brotaþola á Veður
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa, að kvöldi föstudagsins 12. desember 2024, á vínveitingastaðnum ...
Stjórn Velferðar segir ríkið hafa brugðist skyldu sinni í að tryggja viðeigandi búsetuúrræði
📅 29.10.2026 👁️ 2
Stjórn Velferðar segir ríkið hafa brugðist skyldu sinni í að tryggja viðeigandi búsetuúrræði
Hildigunnur Árnadóttir varaformaður Velferðar, samtaka stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga á Íslandi, segir ríkið hafa brugðist skyldu sinni ...
Vill þjóðarátak til að útrýma fátækt barna á Íslandi
📅 29.10.2026 👁️ 5
Vill þjóðarátak til að útrýma fátækt barna á Íslandi
Barnamálaráðherra vill ráðast í þjóðarátak gegn fátækt barna á Íslandi og segist finna fyrir mikilli samstöðu um markmiðið. Hún vill að tveir til þrír...
Gareth Ward defends Michelin-star Ynyshir after food hygeine debacle
📅 29.10.2026 👁️ 1
Gareth Ward defends Michelin-star Ynyshir after food hygeine debacle
Chef Gareth Ward defends how he operates in documentary after Ynyshir got a one-star hygiene rating.
Úti­lokar ekki verk­fall eftir út­spil sem kom eins og þruma úr heið­skíru lofti - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 5
Úti­lokar ekki verk­fall eftir út­spil sem kom eins og þruma úr heið­skíru lofti - Vísir
Að óbreyttu yrði kjarasamningum þá sagt upp 1. janúar 2027 og fengi forsendunefnd svo tvo mánuði til að leysa úr ágreiningsmálum. Takist það ekki yrðu...
Sir Patrick Stewart: The life of an iconic actor
📅 29.10.2026 👁️ 5
Sir Patrick Stewart: The life of an iconic actor
In a career that spanned seven decades, Sir Patrick won multiple Emmys and Golden Globes, a star on the Hollywood Walk of Fame and a knighthood from Q...
Þristurinn gefinn Flugsafni Ís­lands - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 5
Þristurinn gefinn Flugsafni Ís­lands - Vísir
Samkvæmt yfirlýsingunni er stefnt að því að yfirfærslu Þristsins til safnsins verði lokið fyrir lok þessa árs. Aðilar lýsa sig sammála um mikilvægi þe...
Spain train crash: Young athlete and former minister among victims
📅 29.10.2026 👁️ 3
Spain train crash: Young athlete and former minister among victims
As some of the victims' names are released publicly, an outpouring of grief and anger is sweeping across Spain.
Value of Google parent Alphabet plunges by $500bn as AI fears rattle Wall Street
📅 29.10.2026 👁️ 2
Value of Google parent Alphabet plunges by $500bn as AI fears rattle Wall Street
Google spooked investors so badly that its stock hit a six-month low, after it revealed its AI search summaries were affecting ad revenue.
Sagan sýni að flokki sitjandi forseta sé refsað í þingkosningum
📅 29.10.2026 👁️ 4
Sagan sýni að flokki sitjandi forseta sé refsað í þingkosningum
Doktor í félagstölfræði segir að sé litið til sögunnar sé flokki sitjandi forseta oftar en ekki refsað í þingkosningum en Bandaríkjamenn ganga að kjör...
Patrick Stewart er látinn
📅 29.10.2026 👁️ 4
Patrick Stewart er látinn
Enski leikarinn Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri. Stewart lést á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum á miðvikudag.„Í stað blóma er þe...
Skýr merki um kólnun í hagkerfinu
📅 29.10.2026 👁️ 4
Skýr merki um kólnun í hagkerfinu
Una Jónsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segir skýr merki um kólnun í hagkerfinu og viðbúið að dragi úr verðbólgu þegar líður á v...
Sagður hafa átt í sam­skiptum við kín­verskan njósnara - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Sagður hafa átt í sam­skiptum við kín­verskan njósnara - Vísir
Bandaríkjamenn hafa um árabil unnið hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að bandarísk tækni á sviði gervigreindar endi í höndum Kínverja. Huang he...
Birta myndir úr aðgerðinni ótrúlegu í norður Úkraínu – Leiðslurnar aðeins 1,2 metrar í þvermál
📅 29.10.2026 👁️ 3
Birta myndir úr aðgerðinni ótrúlegu í norður Úkraínu – Leiðslurnar aðeins 1,2 metrar í þvermál
Birt hefur verið myndefni úr aðdraganda hernaðaraðgerðinnar Veles í Úkraínu. Komust úkraínskir hermenn langt inn fyrir víglínu Rússa og náðu stóru svæ...
What leaked audio reveals about Spain train crash
📅 29.10.2026 👁️ 5
What leaked audio reveals about Spain train crash
Recordings between a control centre and the train drivers appear to show one train was given clearance to move even though another train had stalled o...
Héldu nám­skeið um heiðursofbeldi - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Héldu nám­skeið um heiðursofbeldi - Vísir
Samkvæmt svörum frá ráðuneytinu við fyrirspurn Vísis var námskeiðið liður í eftirfylgd aðgerða sem lúta að heiðursofbeldi í þingsályktun um framkvæmda...