Ítalska lögreglan hefur náð eftirtektarverðum árangri í baráttunni gegn þjófnaði á listaverkum með aðstoð gervigreindar. Þannig tókst til dæmis að hafa uppi á málverki sem var stolið úr kirkju árið 2004 og breytt til að fela uppruna þess.Í ítarlegri umfjöllun BBC er greint frá því hvernig gervigreind hefur reynst lögreglunni öflugt vopn í leit að stolnum listaverkum og menningarminjum.Í október 2024 voru ítalskir lögreglumenn við eftirlit á forngripamarkaði í Parma. Þeir tóku ljósmyndir af listaverkum sem þar voru til sölu og hlóðu þeim inn í gagnagrunn lögreglunnar.
Gervigreindin sá í gegnum blekkinguna – Málverkið hafði verið týnt í tvo áratugi