Tíðni ákæra á hendur ríkisborgurum Afríkuríkja var 3,77 til 6,59 sinnum tíðni Íslendinga árin 2019 til 2024, miðað við íbúafjölda á aldrinum 15 til 64 ára. Hjá ríkisborgurum MENAPT landa var tíðnin 3,44 til 4,76 sinnum tíðni Íslendinga.
Þetta kemur fram í nýrri greiningu Glufu fyrir Opinaugu.is sem birtist 29. október. Nútíminn hefur farið yfir ákærutölurnar og skoðað útreikningana úr frumgögnum. Niðurstöðurnar fyrir einstök lönd og heildina stemma nákvæmlega. Svæðistölur fyrir Afríku stemma einnig í meginatriðum.
MENAPT þýðir hér borgarar frá Miðausturlöndum, Norður-Afríku, Pakistan og Tyrklandi, auk Afganistans, Sómalíu, Súdans, Máritaníu og Djibútí samkvæmt skilgreiningu Glufu. Hópurinn skarast því að einhverju leyti við Afríku.

Ákærðir á hverja 100.000 íbúa á aldrinum 15 til 64 ára eftir svæðum 2019 til 2024. Mynd: Glufa/Opinaugu.is
Sómalía og Nígería langt yfir viðmiði Íslendinga
Tíðni ákæra hjá sómölskum ríkisborgurum var 7,60 til 8,40 sinnum tíðni Íslendinga og hjá nígerískum ríkisborgurum 6,07 sinnum. Hjá tyrkneskum ríkisborgurum var hún 5,50 til 6,19 sinnum og pakistönskum 5,11 til 6,51 sinnum tíðni Íslendinga. Fyrir Palestínu var hlutfallið 4,39 til 5,31 og Marokkó 3,85 til 4,95.
Þetta eru þó fámennir íbúahópar, oft innan við 150 manns á aldrinum 15 til 64 ára að meðaltali á ári. Sómalski hópurinn taldi 85 íbúa og sá nígeríski 124.
Georgía og Albanía voru enn hærri. Tíðnin var 26,4 sinnum tíðni Íslendinga hjá georgískum ríkisborgurum og 25,9 sinnum hjá albönskum. Á tímabilinu voru 73 ákærðir frá Georgíu og 247 frá Albaníu.
Ákæra er þó ekki sakfelling. Ríkisfang segir heldur ekki til um búsetu. Ferðamenn og fólk sem dvelur á landinu til skemmri tíma teljast með ákærðum en ekki íbúunum sem tíðnin er reiknuð út frá. Það er því ekki hægt að fullyrða að tölurnar lýsi eingöngu ákærum á hendur fólki sem býr hér. Sami einstaklingur getur auk þess verið talinn í fleiri en einum brotaflokki sama ár.
Pólverjar nánast á pari við Íslendinga
Munurinn er mun minni hjá fjölmennasta hópnum, Pólverjum. Tíðni ákæra hjá þeim var 1,07 sinnum tíðni Íslendinga. Í almennum hegningarlögum var tíðnin lægri, eða 0,79 sinnum tíðni Íslendinga. Hjá Litháum var heildarhlutfallið 2,39, Bandaríkjamönnum 2,34 og Lettum 2,20.
Evrópa, þaðan sem langflestir erlendir íbúar koma, er nálægt meðaltali erlendra ríkisborgara. Þar var tíðnin 1,37 til 1,48 sinnum tíðni Íslendinga. Fyrir erlenda ríkisborgara í heild var hlutfallið 1,43 yfir tímabilið og 1,61 árið 2024.
Ákærugögnin koma úr þingskjali 748, svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Þar er ákærðum skipt eftir ríkisfangi og fjórum brotaflokkum árin 2019 til 2024.
Tíföld tíðni í gæsluvarðhaldi
Nútíminn sannreyndi einnig útreikninga Glufu um gæsluvarðhald árin 2023 og 2024. Tíðni hjá erlendum ríkisborgurum var samanlagt 10,2 sinnum tíðni Íslendinga miðað við sama aldurshóp. Árið 2024 voru erlendir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi 208 og íslenskir 90. Þar af voru 63 erlendir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga. Þegar þeir eru dregnir frá lækkar hlutfallið það ár úr 8,56 í 5,97.
Tveir þriðju refsinga fyrir stórfelld fíkniefnabrot hjá erlendum ríkisborgurum
Í stórfelldum fíkniefnabrotum samkvæmt 173. gr. a voru 125 af 189 refsingum sem bárust til fullnustu árin 2019 til 2023 hjá erlendum ríkisborgurum, eða 66,1%. Miðað við íbúa 15 til 64 ára var tíðnin 9,67 sinnum tíðni Íslendinga. Nútíminn hefur sannreynt þessar tölur. Refsingarnar eru taldar eftir aðalbroti og eru ekki fjöldi einstaklinga.