Þá hlutu arabaflokkarnir svonefndu 19 þingsæti og stórjuku fylgi sitt. Þannig er ljóst að hvorki bandalag Netanyahu né Eisenkot-liðar hefðu unnið meirihluta á þinginu, sem telur 120 sæti.
Vilji Benjamín Netanjahú halda áfram sem forsætisráðherra myndi hann annaðhvort þurfa stuðning stjórnarandstöðuflokks eða flokka eða starfa með flokkum ísraelskra araba, sem er hæpið.
Stjórnarandstaðan er í sömu stöðu, þar sem hvorug fylking fékk nægilega mörg þingsæti til að mynda meirihluta. Fyrir kjörtímabilið sem er nú að ljúka þurftu Ísraelar að halda fimm kosningar á fjórum árum vegna langavarandi þráteflis. Til að mynda ríkisstjórn þarf að minnsta kosti 61 þingmann af þeim 120 sem eru á ísraelska þinginu, Knesset.
Í gær fullyrti Netanyahu að arabaflokkarnir hefðu haft rangt við og kosningasvindl með aðkomu stjórnvalda í Katar og Tyrklandi hefði leitt til þess mikla fylgis sem þeir fengu. Talsmenn beggja arabísku flokkanna hafa vísað þeim ásökunum á bug.
Fjallað var um það á Vísi í gær að formaður yfirkjörstjórnar Ísrael hafnaði ásökunum um að umfangsmikið kosningasvindl hafi átt sér stað í kosningunum á þriðjudaginn. Hann segir ásakanirnar grunnlausar og að ekkert bendi til svindls eða þess að kerfisbundin frávik hafi átt sér stað.