Áætlað er að um yfir 3500 manns hafi látist í Indónesíu í september vegna mengunar af völdum skógarelda sem geisað hafa í landinu.
Menguninni fylgja agnir sem fara í lungu og blóðrásina og geta valdið veikindum og dauða. Flestir hafa látist á indónesíska hluta Borneóeyjar, sem og á Jövu og Súmötru í austurhluta landsins.
Skógareldar hafa brunnið í Indónesíu í marga mánuði, en mikill þurrkur og El Niño-veðurfyrirbrigðið hafa bætt gráu ofan á svart og magnað eldana upp. Þeir hafa gleypt í sig meira en 1,9 milljónir hektara landsvæðis á níu mánuðum.