Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, hefur orðið fyrir umfangsmikilli tölvuárás og þjófnaði.
Kauphöllin staðfesti í morgun að það fjármagn sem tölvuárásin hafði áhrif á nemi 6,3 milljörðum dala, eða 765 milljörðum íslenskra króna. Helmingur þeirrar upphæðar, um 3 milljarðar dala, var fryst til að koma í veg fyrir frekari þjófnað.
Binance birti nokkur mótsagnakennd skilaboð í beit á samfélagsmiðlinum X í gærkvöld. Annars vegar var fullyrt að „fjármunir notenda væru fullkomlega öruggir“ en hins vegar að fyrirtækið myndi „bæta allt tap“.
Fjórfalt hærri upphæð en í stærstu tölvuárás
Miðað við þær upphæðir sem Binance gefur upp er þetta næstum því fjórfalt hærri upphæð en stolið var í stærstu tölvuárás hingað til. Það var í febrúar 2025 þegar einum og hálfum milljarði bandaríkjadala var stolið af rafmyntakauphöllinni Bybit.
Sú árás var framkvæmd af hópi hakkara sem kalla sig TraderTraitor og eru taldir tengjast norðurkóreskum stjórnvöldum. Rannsakendur segja margt benda til þess að sami hópur hafi staðið að árásinni í gær.
Á meðan öryggisúttekt fer fram er hvorki hægt að tala út né leggja inn í kauphöllina. Ekki liggur fyrir á þessu stigi málsins hvernig hakkararnir náðu að brjóta sér leið inn í kerfi Biance.
Fréttin var uppfærð eftir að Binance staðfesti þá upphæð sem varð fyrir áhrifum af árásinni og eftir að upplýst var um mögulega tenginu hakkarahópsins við stærstu sambærilegu tölvuárás hingað til.