Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, gagnrýnir Samkeppniseftirlitið í aðsendri grein í Morgunblaðinu og hvetur til þess að fyrirkomulag samkeppniseftirlits verði endurskoðað. Hann vill að aðskilnaður rannsóknar, málsóknar og ákvörðunar um brot verði skýrður betur.
Tilefnið er rannsókn Samkeppniseftirlitsins á þátttöku Landsvirkjunar í útboði Landsnets á raforku vegna flutningstapa 2017–2021 og ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem felldi úr gildi 1,4 milljarða sekt á fyrirtækið.
Hörður segir að annmarkar á rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi ekki verið bundnir við formsatriði og vísar til þess að þeir lutu að því að markaðir hefðu ekki verið skilgreindir með fullnægjandi hætti. Auk þess hafi rannsókn á skilyrðum og mögulegum skaðlegum áhrifum verið ófullnægjandi.
Aðkoma Landsvirkjunar tortryggð
Hörður segir Samkeppniseftirlitið hafa túlkað tilraunir Landsvirkjunar til að tryggja orkuöryggi og vinna samkeppnisréttaráhættugreiningu sem tilraunir til að réttlæta brot á eða sniðganga samkeppnislög.
Hann segir málflutning Samkeppniseftirlitsins meðan á rannsókn stóð einnig hafa verið á þann veg að Landsvirkjun hefði líklega misnotað markaðsráðandi stöðu sína.
„Við töldum ljóst þegar við rannsókn málsins að Samkeppniseftirlitið hefði farið út fyrir valdheimildir sínar.“
„Rannsakar, ákærir og dæmir“
Hörður segir Landsvirkjun hafa átt gott og faglegt samstarf við eftirlitsstjórnvöld í gegnum tíðina.
„Reynslan af þessu máli gefur hins vegar tilefni til að velta fyrir sér hvort núverandi fyrirkomulag samkeppniseftirlits tryggi nægilegan aðskilnað rannsóknar, mats á ætluðu broti og endanlegrar ákvörðunar um brot og viðurlög.“
Hann segir hlutverk Samkeppniseftirlitsins víðtækt. „Rannsakar, ákærir og dæmir. Það vekur spurningar um hvort nægilega skýr skil séu á milli þessara ólíku hlutverka.“
Vildu tryggja raforkuöryggi
Að sögn Harðar gekk Landsvirkjun gott eitt til með þátttöku í útboðum vegna flutningstapa á raforku.
„Við töldum Landsvirkjun bera samfélagslega skyldu til að mæta hluta þessarar eftirspurnar, því ef Landsnet fær ekki raforku til að mæta flutningstöpum getur raforkukerfið hrunið. Það hefði verið hægt að selja stórnotendum þessa orku, en við tókum þá ábyrgu ákvörðun að tryggja frekar að ekki kæmi til kerfishruns vegna takmarkaðs framboðs.“