„Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ - Vísir

„Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ - Vísir

„Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ - Vísir

Rósella hóf árið 2019 að skrá minningar um Ester Evu, elstu dóttur sína, og veikindi hennar en Ester Eva lést úr magakrabba einungis 28 ára gömul. Skrifin voru leið til að vinna úr missinum en verkefnið vatt upp á sig.

„Upphaflega ætlaði ég einungis að skrifa um hennar veikindaferli, en við fjölskyldan höfum lent í miklum hrakningum í lífinu og oft þurft að lúta í lægra haldi. Við höfum meðal annars misst þrettán fóstur. Eiginmaður minn, Ágúst Felix Gunnarsson, greindist með flogaveiki af völdum heilaæxlis ásamt því að fá mjög slæmt hjartaáfall og var honum vart hugað líf. Ég missti föður minn af slysförum þegar ég var fimmtán ára gömul. Þetta er einungis brot af okkar lífsgöngu, þannig að það bættist alltaf við minningarnar og þegar upp var staðið voru þetta orðnar nokkur hundruð blaðsíður.“

Úr varð bókin Sagan mín, sagan hennar, sem Sögur útgáfa gefur út. Þar fjallar Rósella bæði um aðdraganda veikinda dóttur sinnar og líf fjölskyldunnar í sorg eftir andlát hennar. Hún segir mikilvægt að frásögnin nái einnig til þess tímabils.

„Þetta er mjög persónuleg saga af lífi mínu og fjölskyldunnar og þeim erfiðleikum og áföllum sem við höfum þurft að takast á við. Þetta er saga um líf, ást, sorg og missi, en líka um það sem gerist eftir að maður verður fyrir áfalli og þarf einhvern veginn að halda áfram. Og sumar sögur verður maður bara að segja.“

Fjölskyldumyndataka sem fór fram í nóvember 2016. Þarna var hún komin með krabbameinið án þess að við vissum af því.

„Ég held að margir geti tengt við bókina, hvort sem það er sorgin, ástin, fjölskyldan eða það að þurfa að halda áfram þegar lífið tekur óvænta stefnu. Öll þekkjum við sorg á einn eða annan hátt. Margir glíma við frjósemisvanda og þurfa að notast við tækni- eða glasafrjóvgun eins og við hjónin gengum í gegnum margsinnis. Margir hafa upplifað fósturmissi einu sinni eða oftar og það getur verið mikið áfall, en við verðum einhvern veginn að halda áfram. Ég vona svo innilega að skrifin mín geti hjálpað einhverjum sem er að ganga þrautagöngu í lífinu, að bókin rati góða leið og verði til huggunar og styrks.“

Móðurhlutverkið tók breytingum

Ester Eva, dóttir Rósellu, var ung móðir í blóma lífsins þegar hún veiktist skyndilega. Veikindi kölluðu á mikla umönnun og Rósella varði með henni öllum þeim tíma sem hún gat en þurfti jafnframt að laga sig að harkalega breyttum aðstæðum.

„Það er ekkert erfiðara en að horfa upp á barnið sitt alvarlega veikt og hvað þá að vita að hún ætti ekki langt eftir í þessu jarðlífi. Móðurhlutverkið breyttist í eitthvað sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Ég varð að sætta mig við að ég gat ekki lagað verkina, sjúkdóminn eða lofað henni að hlutirnir myndu lagast.“ 

„Ég gerði mér grein fyrir því að við myndum ekki sigra þennan illvíga sjúkdóm. Ég hafði ekkert um það að segja og varð að taka því að ég gat engu breytt.“
Uppáhalds módelmynd okkar allra af Ester Evu, tekin 2015. Ester Eva starfaði sem módel í mörg ár meðfram námi og vinnu eða alveg þangað til hún greindist með krabbamein.

Ester Eva greindist í janúar 2017 og lést í júní sama ár. Rósella segir daglega samveru hafa skipt miklu máli og það sem hægt var að gera hverju sinni réðst af líðan Esterar Evu og kröftum hennar.

„Ég notaði vel allan þann tíma sem ég hafði með dóttur minni. Ég lærði að litlu hlutirnir geta gefið mikið. Fallegur blómvöndur gat gefið okkur lit og góðan ilm inn í daginn, eða bara að halda í höndina á henni, strjúka henni um vangann, syngja lagið okkar, Sofðu unga ástin mín, þegar verkirnir voru miklir. Eða bara það að sitja þögul við hlið hennar og horfa á hana og sýna henni alla þá ást og umhyggju sem ég gat. Ég lærði líka að sem móðir er allt í lagi að vera hrædd, uppgefin og brotin. Við fengum líka mjög góða og persónulega þjónustu í bæði heimahjúkrun og á Mt. Auburn-spítalanum og það finnst mér skipta miklu máli. Margir læknar og hjúkrunarfólk urðu góðir vinir okkar á þessum tímum og ég er ennþá í sambandi við sumt af þessu frábæra starfsfólki.“

Umönnunin hafði einnig áhrif á samband þeirra og hlutverk Rósellu þegar Ester Eva var heima.

„Hún þarfnaðist mikillar umönnunar og oftar en ekki varð móðurhlutverkið að víkja. Ég var ekki bara móðir hennar heldur líka hjúkrunarfræðingur þegar hún var heima. Ég varð að stíga inn í það hlutverk oftar en ég hefði viljað.“

Skrifin voru bæði sársaukafull og viss léttir

Rósella segir sig hafa lagt áherslu á að lýsa eigin viðbrögðum af hreinskilni. Í frásögninni dregur hún ekki úr því hversu erfitt tímabilið var.

„Ég er mjög hreinskilin og opinská varðandi veikindi og missi dóttur minnar og er ekkert að fegra hlutina sem gerast á þessum tíma. Ég segi á hispurslausan hátt frá minni líðan.

Við mæðgur gengum upp Úlfarsfellið 2. júní sl. til minningar um Ester Evu sem lést á þessum degi árið 2017.

Það var mjög erfitt og sársaukafullt að rifja ýmsa atburði upp og það kom oft fyrir að ég þurfti að leggja frá mér pennann. Það tók mig rúm sjö ár að skrifa, með góðum hléum. En á sama tíma var einnig viss léttir í því að koma þessu frá mér.“

Yngri dætur Rósellu og Ágústs voru sextán og þrettán ára þegar Ester Eva lést. Synir Esterar Evu voru þá aðeins þriggja ára og tíu mánaða.

„Eitt af því sem hefur hjálpað okkur í gegnum allt þetta er hvað við erum sterk og samheldin fjölskylda. Það er mikill samgangur á milli okkar og Spencers, eiginmanns Esterar Evu, og drengjanna þeirra. Þeir búa um fjörutíu mínútum frá okkur og koma reglulega í heimsókn og gista þá oftast yfir helgi. Fjölskyldutengsl eru ómetanleg á svona tímum. Þar erum við svo sannarlega rík.“

Dagleg verkefni og húmor hjálpuðu

Fjölskyldan og vinirnir voru helsti stuðningur Rósellu í daglegu lífi. Eftir útgáfu bókarinnar hefur hún jafnframt áttað sig betur á því hversu margir studdu hana.

„Það sem hjálpaði mér mest í mínu daglega lífi við að komast í gegnum erfiðustu stundirnar voru fyrst og fremst fjölskyldan mín og vinir. Eftir að bókin kom út uppgötvaði ég að vinahópurinn minn er miklu stærri en ég hafði gert mér grein fyrir og fyrir það er ég þakklát. Það er gaman að segja frá því að eftir útgáfu bókarinnar hafa margir verið í sambandi við mig, þar á meðal gamlir skólafélagar og vinir sem ég hafði ekki heyrt frá í mörg ár. Þarna urðu mörg vinasambönd endurvakin, sem mér þykir auðvitað mjög vænt um.“

Hún fann sér líka verkefni á heimilinu og segist hafa lagt mikla vinnu í að mála og gera upp.

„Öll málningarvinna kom líka sterkt inn, en ég réðst á allt það sem ég gat málað, hvort sem það voru veggir, loft, hurðir eða gólflistar. Og ekki má gleyma fræga forláta skápnum sem ég hirti upp af gangstétt í hverfinu okkar og gerði upp á einhverjum mánuðum, eitthvað sem ég tel að Ester Eva hafi vísað mér á.“

Við Ester Eva á keppninni um Ungfrú Ísland sem hún tók þátt í árið 2008.

Húmorinn hefur einnig verið áberandi í lífi fjölskyldunnar, þrátt fyrir erfiðleikana.

„Gleði og bara það að hlæja hressilega endrum og eins er auðvitað besta meðalið, en það hefur bjargað okkur hjónum og dætrum í gegnum árin. Við reynum að sjá spaugilegu hliðina á hlutunum og það hefur stundum komið okkur í ýmsan vanda á ólíklegum stöðum.“

Mikilvægt að halda áfram að hafa samband

Aðspurð um stuðning við fólk í sorg segir Rósella mestu skipta að gefa sér tíma til að hlusta. Sjálf hafi hún þurft að tala mikið um Ester Evu og sú þörf sé enn til staðar.

„Að eiga góða að, vera til staðar fyrir syrgjendur og kannski það allra mikilvægasta – að hlusta. Að vera góður hlustandi skiptir sköpum. Ég þurfti mikið á því að halda að tala um Ester Evu mína og geri enn þann dag í dag. Þá er gott að eiga sanna vini og fjölskyldu sem gefa sér tíma í að hlusta.“

Hún telur jafnframt mikilvægt að fólk haldi áfram að sýna áhuga og umhyggju þegar tími er liðinn frá andláti.

„Ekki gleyma syrgjandanum, því þó svo að jarðarförinni eða minningarathöfninni sé lokið er sorgarferlið kannski bara rétt að hefjast. Sorgin ristir svo djúpt og getur verið til staðar í mörg ár á eftir eða jafnvel ævilangt. Hringdu í viðkomandi, kíktu í heimsókn, sýndu hlýhug. Þó að syrgjandinn sé ekki tilbúinn að tala við þig akkúrat núna máttu ekki gefast upp.“ Rósella bendir jafnframt á að sjálfsagt sé að hafa samband við hana ef þörf er fyrir hendi í gegnum Facebook/Messenger.

Rósella segir þó ekki alltaf hafa verið augljóst hvernig henni leið. Hún hafi lengi reynt að leyna sorginni fyrir sínum nánustu.

„Ég faldi sorgina mína í mörg ár og setti upp leikrit fyrir mína nánustu. En ég var einstaklega heppin að eiga skilningsríka mömmu og góða vinkonu sem sáu í gegnum leikþáttinn hjá mér og gagnvart þeim gat ég verið ég sjálf. Ég gat grátið að vild, verið reið eða óþolinmóð, en þær hlustuðu á mig þegar ég þurfti á því að halda. Það er engin ein regla þegar kemur að sorg eða sorgarferli. Við erum öll ólík og tökumst á við hlutina á mismunandi vegu.“

Þrjár sögur í einni bók

Rósella lýsir bókinni sem þrískiptri frásögn. Hún segir sína sögu, sögu Esterar Evu og loks sameiginlega sögu fjölskyldunnar.

„Hún er hluti af minni sögu og ég varð hluti af hennar, en Ester Eva á sína eigin rödd í þessari bók. Lesandinn fær innsýn í líf Esterar Evu og hvernig hún upplifði sín veikindi, með miklu æðruleysi, trú og vilja til að lifa.“

Meðal þess sem Ester Eva vildi láta verða af var að giftast æskuástinni sinni og föður drengjanna þeirra. Brúðkaupið fór fram á sjúkrahúsinu þremur dögum fyrir andlát hennar. Bókin fylgir síðan fjölskyldunni áfram.

„Ég segi frá erfiðleikum sem við mættum í framhaldi af andláti hennar. Endalausum flótta, og ýmsum hindrunum sem urðu á okkar vegi í mörg ár á eftir. Þetta er saga um það hvernig fólk heldur áfram að lifa eftir missi, að finna aftur fótfestuna í lífinu og tilganginn að halda áfram.“

Við foreldrarnir og Spencer að lokinni Ungfrú Reykjavík keppninni sem Ester Eva tók þátt í árið 2008.

Hún vonar að bókin geti gagnast fólki með ólíka reynslu, meðal annars þeim sem hafa glímt við frjósemisvanda og fósturmissi.

„Ég held að margir geti tengt við bókina, hvort sem það er sorgin, ástin, fjölskyldan eða það að þurfa að halda áfram þegar lífið tekur óvænta stefnu. Ég vona svo innilega að skrifin mín geti hjálpað einhverjum sem er að ganga svona þrautagöngu í lífinu eins og við fjölskyldan og að bókin verði einhverjum til huggunar og styrks.“

Sköpunin sameiginlegt áhugamál

Rósella hóf skartgripahönnun árið 2016 og segir Ester Evu hafa verið sinn dyggasta stuðningsmann. Hönnunin var sett til hliðar í veikindunum en ári eftir andlát dótturinnar tók hún aftur til við hana.

„Hún hvatti mig eindregið áfram, og ég hannaði mikið þangað til hún veiktist. Einu ári eftir að hún lést tók ég upp þráðinn aftur og hannaði armband til minningar um hana. Það kom ekkert annað til greina en að hanna armband í hennar anda og það seldist gríðarlega vel.“

Þær mæðgur deildu áhuga á hönnun og handverki. Ester Eva var iðnhönnuður að mennt og Rósella segir hana alltaf hafa verið að hanna eða búa eitthvað til.

„Ég held að við mæðgur höfum átt þetta sameiginlegt. Þessi sköpun gerði mikið fyrir okkur meðan Ester Eva lifði og hefur gert mjög mikið fyrir mig í mínu sorgarferli, en það er mikill lækningamáttur í því að að skapa eitthvað. Það má segja að öll hönnun og skrif hafi bjargað mér á svo margan hátt í lífinu.“

„Ég vona svo innilega að skrifin mín geti hjálpað einhverjum sem er að ganga svona þrautagöngu í lífinu eins og við fjölskyldan og að bókin verði einhverjum til huggunar og styrks.“

Rósella velur alltaf lífið

Séra Vigfús Bjarni Albertsson ritar formála bókarinnar og segir sögu Rósellu ekki aðeins áhrifamikla heldur geti hún einnig veitt öðrum von og hjálpað þeim að takast á við eigin áföll.

„Rósella kemur með mikið hugrekki í þennan heim, líklega er það hugrekki bæði vöggugjöf og afleiðing lífsreynslu hennar,“ skrifar hann og bætir við: „Rósella velur alltaf lífið.“

Hann segir að fólk sem hafi lifað af erfið áföll geti veitt öðrum von með sögu sinni.

„Saga Rósellu ljær okkur von og heilun. Þetta er frásögn konu og fjölskyldu sem kallar fram hugleiðingar og tilfinningar. Þessi lífssaga gefur okkur þá gjöf að fara inn á við og heimsækja okkar eigin tilfinningar og lífssögu.“

#hef #lifa #læra #með #þurft


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262951460d/-eg-hef-thurft-ad-laera-ad-lifa-med-thvi-sem-ekki-verdur-breytt-

📰 Aðrar fréttir

Bjarga samkynhneigðum hrútum frá sláturhúsinu – „Sumt fólk sagði að við værum rugluð“
📅 30.10.2026 👁️ 0
Bjarga samkynhneigðum hrútum frá sláturhúsinu – „Sumt fólk sagði að við værum rugluð“
Michael Stücke, frá Löhne í vesturhluta Þýskalands, bjargar samkynhneigðum hrútum frá sláturhúsinu. Síðan 2023 hefur hann framleitt ull úr þeim sem ka...
Leyndarmál miðaldra kvenna afhjúpað – „Eiginmennirnir ættu að vera þakklátir“
📅 30.10.2026 👁️ 1
Leyndarmál miðaldra kvenna afhjúpað – „Eiginmennirnir ættu að vera þakklátir“
Erótískar fantasíubókmenntir njóta sívaxandi vinsælda og virðast hafa sérstakt aðdráttarafl fyrir konur á miðjum aldri. Sumar þeirra segja lesturinn e...
Stefán Jón Hafstein ósáttur - „Ísland verður að taka sig verulega á“
📅 30.10.2026 👁️ 1
Stefán Jón Hafstein ósáttur - „Ísland verður að taka sig verulega á“
Stefán Jón Hafstein fyrrum borgarfulltrúi, sjónvarpsmaður og sendiherra og núverandi formaður stjórnar RÚV segir að mikið vanti upp á að Ísland sé að ...
Hófu aftur á­rásir á olíuvinnslur eftir blóð­bað - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 0
Hófu aftur á­rásir á olíuvinnslur eftir blóð­bað - Vísir
Árásir Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi þykja vel heppnaðar en sala á olíuafurðum er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins og er notuð...
Keppast um að minnast Stewarts - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 0
Keppast um að minnast Stewarts - Vísir
McKellen birti færslu á Facebook-síðu sinni í nótt þar sem hann ausir lofi yfir hinn látna Stewart og þakkar honum fyrir samfylgdina.  „Umfram allt ei...
Landsbankinn hagnaðist um 33 milljarða en hefur áhyggjur af byggingarfyrirtækjum
📅 30.10.2026 👁️ 1
Landsbankinn hagnaðist um 33 milljarða en hefur áhyggjur af byggingarfyrirtækjum
Landsbankinn hagnaðist um 33 milljarða en hefur áhyggjur af byggingarfyrirtækjum Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu má...
Efnahagur Frakklands stefnir á vegg
📅 30.10.2026 👁️ 2
Efnahagur Frakklands stefnir á vegg
Efnahagur Frakklands stefnir á vegg Lands­fram­leiðsla Frakk­lands dregst saman og vextir af skuldum þyngj­ast. Fjár­mála­ráð­herra segir brýnt að sam...
Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu - Vísir
Flóttamannaleið við Vífilsstaðavatn var lokað á áttunda tímanum í morgun vegna bílveltu en hefur nú opnað að nýju. Einn var í bílnum en hann slasaðist...
Óttast að þjónusta við í­búa verði lakari og dýrari í kjöl­far upp­sagna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 1
Óttast að þjónusta við í­búa verði lakari og dýrari í kjöl­far upp­sagna - Vísir
Búi missti sjálfur vinnuna á þriðjudag í uppsögnunum en hafði starfað hjá borginni í fimm ár, fyrst sem þjónustuhönnuður og síðan sem stafrænn leiðtog...
Sjálfstæði miðillinn Novaya Gazeta hættir störfum
📅 30.10.2026 👁️ 1
Sjálfstæði miðillinn Novaya Gazeta hættir störfum
Stjórnendur sjálfstæða rússneska dagblaðsins Novaya Gazeta segja að starfsemi þess verði algerlega hætt 9. nóvember. Í yfirlýsingu Sergei Sokolov aðal...
Flóttamannaleið lokaðist vegna bílveltu
📅 30.10.2026 👁️ 2
Flóttamannaleið lokaðist vegna bílveltu
Flóttamannaleið var lokað við Vífilsstaðavatn í morgun vegna umferðarslyss. Búið er að opna veginn aftur.Bíll valt og er verið að huga að meiðslum ein...
Foreign defence contractors will need to invest in UK under new rules
📅 30.10.2026 👁️ 2
Foreign defence contractors will need to invest in UK under new rules
Foreign firms awarded large defence contracts will need to invest an equal value back into the UK, Wes Streeting announces.
Watch: What we know about Binance's $6.3bn hack
📅 30.10.2026 👁️ 2
Watch: What we know about Binance's $6.3bn hack
BBC business reporter Archana Shukla explains more about what is suspected to be the largest hack in history.
Hörður lætur allt flakka um Samkeppniseftirlitið: „Ég get ekki lengur orða bundist“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Hörður lætur allt flakka um Samkeppniseftirlitið: „Ég get ekki lengur orða bundist“
Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, gagnrýnir Samkeppniseftirlitið harðlega og segir stofnunina hafa farið út fyrir valdheimildir sí...
Fuerteventura moves closer to tourist tax for Corralejo and El Cotillo
📅 30.10.2026 👁️ 2
Fuerteventura moves closer to tourist tax for Corralejo and El Cotillo
Holidaymakers staying in Corralejo, El Cotillo and other parts of northern Fuerteventura could face a tourist charge after La Oliva council gave initi...
Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið - Vísir
Rætt var við Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Bítinu í morgun. Í þessari viku og í næstu ...
How to get better support responses from App teams
📅 30.10.2026 👁️ 2
How to get better support responses from App teams
From banking and betting to entertainment and travel, mobile apps enable the digital experiences of millions of people across the globe. As a result, ...
Víð­áttu­mikil lægð sem grynnist smám saman - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Víð­áttu­mikil lægð sem grynnist smám saman - Vísir
Skúrir og jafnvel slydduél á stöku stað, en skýjað með köflum á Norðaustur- og Austurlandi. Fremur milt í veðri. Hiti tvö til átta stig og skúraleiðin...
Sveppamorðingi fær enga reynslu­lausn - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Sveppamorðingi fær enga reynslu­lausn - Vísir
Erin Patterson, 52 ára, var fundin sek í ágúst í fyrra um að hafa myrt þrjá ættingja sína og tilraun til manndráps með því að bera fram eitraða máltíð...
Four arrested as two cannabis clubs closed in Adeje
📅 30.10.2026 👁️ 2
Four arrested as two cannabis clubs closed in Adeje
The National Police have arrested four people and closed two cannabis clubs in Adeje following an operation against suspected drug trafficking in the ...
Ósáttur við eftirlit sem „rannsakar, ákærir og dæmir“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Ósáttur við eftirlit sem „rannsakar, ákærir og dæmir“
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, gagnrýnir Samkeppniseftirlitið í aðsendri grein í Morgunblaðinu og hvetur til þess að fyrirkomulag samkeppn...
Yfir 3500 látnir af völdum mengunar í september
📅 30.10.2026 👁️ 3
Yfir 3500 látnir af völdum mengunar í september
Áætlað er að um yfir 3500 manns hafi látist í Indónesíu í september vegna mengunar af völdum skógarelda sem geisað hafa í landinu.Menguninni fylgja ag...
Skemmti­leg leið til að halda minningunni á lífi - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Skemmti­leg leið til að halda minningunni á lífi - Vísir
Yfirskrift sýningarinnar, „Alltílagi bless“ er setning sem Magnús notaði iðulega sem svar við alls konar og engu.  Vala Rún er fædd árið 1996 og starf...
Mikil­vægt að styggja fólk ekki með orða­lagi - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Mikil­vægt að styggja fólk ekki með orða­lagi - Vísir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er næsti gestur í Sætinu. Við tökum á móti honum í Smiðju, húsi sem hann hefur reyndar verið mjög g...
Tíðni ákæra hjá sómölskum ríkisborgurum u.þ.b. áttföld á við Íslendinga – Tíðni MENAPT borgara einnig mun hærri
📅 30.10.2026 👁️ 2
Tíðni ákæra hjá sómölskum ríkisborgurum u.þ.b. áttföld á við Íslendinga – Tíðni MENAPT borgara einnig mun hærri
Tíðni ákæra á hendur ríkisborgurum Afríkuríkja var 3,77 til 6,59 sinnum tíðni Íslendinga árin 2019 til 2024, miðað við íbúafjölda á aldrinum 15 til 64...
Gervigreindin sá í gegnum blekkinguna – Málverkið hafði verið týnt í tvo áratugi
📅 30.10.2026 👁️ 2
Gervigreindin sá í gegnum blekkinguna – Málverkið hafði verið týnt í tvo áratugi
Ítalska lögreglan hefur náð eftirtektarverðum árangri í baráttunni gegn þjófnaði á listaverkum með aðstoð gervigreindar. Þannig tókst til dæmis að haf...
Hagnaður Krónunnar jókst um 500 milljónir en afkoma N1 versnaði
📅 30.10.2026 👁️ 2
Hagnaður Krónunnar jókst um 500 milljónir en afkoma N1 versnaði
Hagnaður Krónunnar jókst um 500 milljónir en afkoma N1 versnaði Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum mi...
FRIDAY WEATHER:  Cloudy skies and fading calima across the Canary Islands
📅 30.10.2026 👁️ 2
FRIDAY WEATHER: Cloudy skies and fading calima across the Canary Islands
The Canary Islands can expect a mixture of high and low cloud this Friday, 30th October, with some lingering calima giving the sky a hazy appearance, ...
Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael - Vísir
Þá hlutu arabaflokkarnir svonefndu 19 þingsæti og stórjuku fylgi sitt. Þannig er ljóst að hvorki bandalag Netanyahu né Eisenkot-liðar hefðu unnið meir...
Lögreglurannsókn hafin vegna framkvæmda Google
📅 30.10.2026 👁️ 2
Lögreglurannsókn hafin vegna framkvæmda Google
Finnska lögreglan hefur hafið sakamálarannsókn vegna uppbyggingar Google á gagnaverum í landinu. Grunur er um að umhverfislög hafi verið brotin við fr...
Blautt vestan til en bjartara fyrir norðan og austan
📅 30.10.2026 👁️ 2
Blautt vestan til en bjartara fyrir norðan og austan
Íbúar á vestanverðu landinu geta búið sig undir skúraleiðingar í dag. Norðan og austan til verður þurrt og sést meira að segja til sólar á köflum. Á m...
UK weather: hazardous driving conditions as fog warning issued by Met Office
📅 30.10.2026 👁️ 2
UK weather: hazardous driving conditions as fog warning issued by Met Office
Foggy conditions likely to bring tricky conditions for the Friday morning commute as severe weather warning issued.
Syrians grow frustrated as soaring living costs threaten recovery
📅 30.10.2026 👁️ 2
Syrians grow frustrated as soaring living costs threaten recovery
Fuel price rises are driving discontent, testing support for Ahmed al-Sharaa's government.
Nína Richter skrifar: Enginn fátækur í faginu
📅 30.10.2026 👁️ 2
Nína Richter skrifar: Enginn fátækur í faginu
Mynd Ég er komin til Búdapest í annað sinn.
Námsmenn tæma skóla í dag og lögregla býst við óeirðum
📅 30.10.2026 👁️ 4
Námsmenn tæma skóla í dag og lögregla býst við óeirðum
Ítalskir námsmenn ætla að safnast saman í nokkrum borgum í dag og krefjast aukins fjármagns til skólamála, sem og stuðnings við húsnæðismál. Löggæsluy...
Milljörðum sennilega stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
📅 30.10.2026 👁️ 3
Milljörðum sennilega stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, varð fyrir umfangsmikilli tölvuárás og hefur kauphöllin fryst fjármagn upp á 2,5 milljarða bandaríkjadala til...
Milljörðum stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
📅 30.10.2026 👁️ 2
Milljörðum stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, hefur orðið fyrir umfangsmikilli tölvuárás og þjófnaði.Kauphöllin staðfesti í morgun að það fjármagn sem tölv...
Einn látinn í eldflaugaárás í Kíev
📅 30.10.2026 👁️ 4
Einn látinn í eldflaugaárás í Kíev
Einn er látinn eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás í Kíev, höfuðborg Úkraínu. Vitali Klitschko borgarstjóri greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Tele...
Einn látinn í eldflaugaárás í Kyiv
📅 30.10.2026 👁️ 3
Einn látinn í eldflaugaárás í Kyiv
Einn er látinn eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás í Kyiv, höfuðborg Úkraínu. Vitali Klitschko borgarstjóri greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Tele...
Hafna áfrýjunarbeiðni sveppamorðingjans og þyngja dóminn
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hafna áfrýjunarbeiðni sveppamorðingjans og þyngja dóminn
Erin Patterson, áströlsk kona sem var dæmd í lífstíðarfangelsi á síðasta ári fyrir þrefalt morð, tapaði áfrýjun á máli sínu í dag.Patterson komst í he...
Democrats have an identity crisis - it won't be an easy fix
📅 30.10.2026 👁️ 3
Democrats have an identity crisis - it won't be an easy fix
Whatever the result of the midterm elections, the party is facing tough questions over what they stand for and who should represent them.
Watch: Why Australia's mushroom murderer may now die in prison
📅 30.10.2026 👁️ 2
Watch: Why Australia's mushroom murderer may now die in prison
Judges agreed with the prosecution’s appeal that Erin Patterson’s initial non-parole period of 33 years was insufficient.
Talningu lokið og strembin stjórnarmyndun fram undan
📅 30.10.2026 👁️ 4
Talningu lokið og strembin stjórnarmyndun fram undan
Öll atkvæði hafa verið talin í Ísrael. Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, fékk 27 þingsæti og stjórnarblokk hans er með alls 53 sæti...
Erin Patterson: Australian mushroom murderer loses appeal to overturn convictions
📅 30.10.2026 👁️ 4
Erin Patterson: Australian mushroom murderer loses appeal to overturn convictions
Erin Patterson argued her trial was unfair due to seven grounds but three appeal judges dismissed them all.
Biggest fibre boost could be scraps in your bin, experts say
📅 30.10.2026 👁️ 4
Biggest fibre boost could be scraps in your bin, experts say
Chomping on vegtable skins, seeds and stalks could give us vital fibre, say food scientists.
Crypto giant Binance freezes $2.5bn of assets over suspected hack
📅 30.10.2026 👁️ 6
Crypto giant Binance freezes $2.5bn of assets over suspected hack
The firm said transactions are suspended while it conducts security checks and will "cover all losses".
Crypto worth billions frozen after suspected Binance hack
📅 30.10.2026 👁️ 4
Crypto worth billions frozen after suspected Binance hack
The firm said transactions are suspended while it conducts security checks and will "cover all losses".
Binance says crypto worth $6.3bn impacted in suspected hack
📅 30.10.2026 👁️ 2
Binance says crypto worth $6.3bn impacted in suspected hack
The firm said roughly $3bn in assets have been frozen and that it will 'cover all losses'.
Crypto giant Binance hit by 'largest hack in history'
📅 30.10.2026 👁️ 3
Crypto giant Binance hit by 'largest hack in history'
The world's biggest crypto exchange said $6.3bn of digital assets had been impacted by the incident.
Crypto giant Binance hit by hack suspected to be largest in history
📅 30.10.2026 👁️ 2
Crypto giant Binance hit by hack suspected to be largest in history
Two analytics firms have attributed the incident to a North Korean hacking unit called TraderTraitor.