Stjórnendur sjálfstæða rússneska dagblaðsins Novaya Gazeta segja að starfsemi þess verði algerlega hætt 9. nóvember. Í yfirlýsingu Sergei Sokolov aðalritstjóra blaðsins segir að ofsóknir stjórnvalda hafi gengið af því dauðu en þau skilgreindu það sem erlendan útsendara fyrr í haust. Þeirri aðferð hefur verið beitt til að kveða niður andóf.
„Yfirvöld og leyniþjónustur landsins hafa þvingað ritstjórnina til að hætta útgáfunni.“ Fyrrverandi aðalritstjóri Dmitry Muratov fékk sama stimpil og steig til hliðar haustið 2023 til að hlífa blaðinu fyrir þeim lögfræðilegu þvingunum sem fylgdu.
Muratov hlaut Friðarverðlaun Nóbels árið 2021 ásamt Mariu Ressa fyrir ötula baráttu sína og vinnu í þágu tjáningarfrelsisins í Rússlandi.
Novaya Gazeta hóf göngu sína árið 1993 og er heimsþekkt fyrir rannsóknarblaðamennsku þar sem flett var ofan af spillingu stjórnvalda og mannréttindabrotum auk þess sem það hefur gagnrýnt stríðsrekstur þeirra.
Stjórnvöld hafa hert ofsóknir gegn frjálsum fréttamiðlum frá upphafi innrásarstríðsins í Úkraínu, þá var fjölmiðlaleyfi Novaya Gazeta ógilt og flutti starfsemi sína að stórum hluta til Lettlands.
Blaðamenn Novaya Gazeta hafa mátt þola miklar hótanir, árásir og morðtilraunir. Sex blaðamenn hafa verið myrtir, þeirra á meðal Anna Politkovskaya. Hún var ráðin af dögum 7. október 2006 eftir að hún hafði meðal annars gagnrýnt stríðið í Tsjetsjeníu og skrifað bókina Rússland Pútíns.