Flóttamannaleið við Vífilsstaðavatn var lokað á áttunda tímanum í morgun vegna bílveltu en hefur nú opnað að nýju. Einn var í bílnum en hann slasaðist ekki mikið samkvæmt slökkviliði. Samkvæmt Vegagerðinni hefur verið vart við hálkubletti hér og þar um borgina og eru vegfarendur beðnir um að aka varlega.
Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu - Vísir