Erna Bjarnadóttir skrifar:
Þýski stefnumótunarfræðingurinn Thomas H. Stütz birti nýlega færslu á LinkedIn sem vakti sérstaka athygli mína. Þar fjallaði hann um efnahagslegt tap sem birtist hvorki í bókhaldi fyrirtækja né opinberum hagskýrslum. Ekki tap vegna fyrirtækja sem verða gjaldþrota, heldur vegna þeirra sem aldrei verða stofnuð.
Hugmyndin er einföld en afleiðingar hennar geta verið víðtækar. Þegar fyrirtæki verður gjaldþrota er hægt að telja störfin sem tapast, skuldirnar sem verða eftir og áhrifin á nærsamfélagið. En hvernig mælum við verðmæti fjárfestinga sem aldrei var ráðist í, fyrirtækja sem aldrei urðu til og starfa sem enginn fékk?
Stütz bendir á að árin 2024 og 2025 hafi samtals tæplega 46 þúsund fyrirtæki orðið gjaldþrota í Þýskalandi. Þau birtast í opinberum hagskýrslum. Engin sambærileg skrá er hins vegar til um þau fyrirtæki sem hefðu hugsanlega orðið til við aðrar efnahagslegar og stofnanalegar aðstæður.
Þetta er ekki aðeins áhugaverð hagfræðileg vangavelta. Hún á fullt erindi inn í íslenska umræðu um skattastefnu, atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun.
Fórnarkostnaður – það sem aldrei sést
Franski hagfræðingurinn Frédéric Bastiat fjallaði á nítjándu öld um muninn á því sem sést og því sem ekki sést í efnahagslífinu. Ákvarðanir hafa ekki aðeins þær afleiðingar sem blasa við, heldur geta þær einnig komið í veg fyrir að aðrir möguleikar verði að veruleika.
Þetta tengist hugtakinu fórnarkostnaður. Þegar fjármagni eða öðrum verðmætum er ráðstafað á einn veg er jafnframt horfið frá öðrum valkostum. Verðmæti þeirra getur verið verulegt þótt þau komi aldrei fram í bókhaldi.
Þegar ný tækifæri ná ekki að verða til
Mikil umræða hefur verið undanfarna mánuði um skatta og gjaldtöku af ýmsu tagi. Ferðaþjónustan hefur verið þar í brennidepli. Innviðagjald á skemmtiferðaskip er nærtækt dæmi sem tengja má við þessa hagfræðilegu nálgun.
Innviðagjaldið sem tók gildi árið 2025 nam 2.500 krónum á farþega fyrir hvern byrjaðan sólarhring innan íslenskrar lögsögu. Það var lækkað í 1.600 krónur árið 2026.
Samkvæmt bókunaráætlunum sem lagðar voru fyrir Alþingi haustið 2025 stefndi í verulega fækkun skipakoma á nokkrum áfangastöðum, meðal annars á Austurlandi. Á Djúpavogi var gert ráð fyrir 58 komum árið 2025 en 26 árið 2027. Á Borgarfirði eystri var samsvarandi fækkun úr 22 komum í sex.
Fleira en innviðagjaldið hefur áhrif á þessar ákvarðanir, meðal annars breytingar á tollfrelsi og óvissa um rekstrarskilyrði. En dæmið sýnir hvers vegna ekki nægir að skoða tekjur ríkisins af gjaldtökunni.
Þegar skip hættir við komu geta tekjur hafna, leiðsögumanna, veitingastaða og annarra þjónustuaðila fallið niður. Sá kostnaður er að einhverju leyti mælanlegur.
Inn í þessa mynd þarf einnig að bæta byggðarlögum þar sem tækifæri eru til staðar en markaðurinn enn lítt þróaður. Sum þeirra hafa þegar tekið fyrstu skrefin sem áfangastaðir skemmtiferðaskipa. Fyrir þessa staði getur aukin gjaldtaka gert markaðssetningu og uppbyggingu erfiðari en ella. Það þarf að laða að nýja viðskiptavini, kynna áfangastaðinn, byggja upp viðskiptasambönd og skapa forsendur fyrir þjónustu sem enn hefur ekki náð að þróast.
Ef gjaldtaka dregur úr áhuga skipafélaga á að prófa nýja viðkomustaði getur hún torveldað uppbyggingu atvinnustarfsemi sem enn er ekki til. Þetta er annað en að missa viðskipti sem þegar hafa skapast.
Skattastefna og verðmæti valkostanna
Hagfræðingurinn Douglass North sýndi hvernig stofnanir samfélagsins móta hvata til efnahagslegra ákvarðana. Lög, reglur, skattar og fyrirsjáanleiki hafa áhrif á það hvort einstaklingar stofna fyrirtæki, fjárfesta og taka áhættu.
Skattar fjármagna vitaskuld mikilvæga innviði og opinbera þjónustu sem geta sjálf skapað verðmæti. Spurningin er því ekki hvort skattlagning sé æskileg eða óæskileg í sjálfu sér, heldur hvort heildaráhrif hennar séu metin.
Það er heldur ekki hægt að líta á sérhverja óstofnaða atvinnustarfsemi sem tap. Sumar hugmyndir eru einfaldlega óarðbærar. En þegar opinberar ákvarðanir breyta forsendum fyrir arðbærri starfsemi þarf að taka þann kostnað með í reikninginn.
Hér skiptir fyrirsjáanleiki skattastefnu ekki síður máli en skattbyrðin sjálf. Uppbygging nýrrar atvinnustarfsemi er langtímaverkefni. Það á sérstaklega við í ferðaþjónustu, þar sem markaðssetning, viðskiptasambönd og fjárfestingar byggjast á áætlunum sem ná mörg ár fram í tímann. Óvæntar breytingar á rekstrarskilyrðum geta því haft áhrif á ákvarðanir löngu áður en afleiðingarnar birtast í opinberum hagskýrslum.
Þetta á ekki síst við um atvinnuuppbygginguna á landsbyggðinni. Þar getur verið jafn mikilvægt að ryðja hindrunum úr vegi fyrir ný fyrirtæki og að verja þau sem fyrir eru.
Vandinn er að hið fyrra er mun erfiðara að sýna fram á. Það sem aldrei varð til á sér enga sögu í opinberum tölum.
Við teljum fyrirtækin sem verða gjaldþrota. Við teljum störfin sem hverfa. En fyrirtækin sem aldrei urðu til eiga sér enga hagskýrslu, engin hagsmunasamtök og engan talsmann.
Höfundur er hagfræðingur.