Ejler Borch fæddist 1925 og hann var ekki orðinn 19 ára þegar hann gekk til liðs við samtök sem gengu undir nafninu BOPA, Borgerlige Partisaner eins og samtökin heita á dönsku, og tók þátt í árásum eða spellvirkjum þessara samtaka á lokaárum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Líkt og margir aðrir sem þátt tóku í andspyrnunni gegn Þjóðverjum hefur hann þó haft hljótt um þennan afdrifaríka tíma þar til fyrir skemmstu, þegar rithöfundurinn Anders Hauch Fenger hafði uppi á honum. Eftir nokkra eftirgangsmuni féllst Ejler á að segja sögu sína.
Ejler er kvikur á fæti, segist fara í ræktina þrisvar í viku og sjá um sig sjálfur, hann lét sig ekki muna um að snara sér til Íslands til að kynna þýðingu á bók sem skrifuð hefur verið um hann og kemur nú út í íslenskri þýðingu Þorvaldar Þorvaldssonar.
Þjóðverjar réðust inn í Danmörku strax í apríl 1940 og danska ríkisstjórnin ákvað að vera samvinnufús gegn því að halda völdum að hluta.
Sú afstaða hefur alla tíð verið umdeild og ekki síður starfsemi danskra fyrirtækja sem framleiddu vörur fyrir þýska herinn.
Uppgjör þessara afdrifaríku ára hefur auðvitað verið erfitt og stjórnmálaflokkar hafa lent í miklum vanda við að gera upp stríðsárin og gjörðir flokksmanna á þeim tíma. Í reynd var það almenningur sem tók í taumana í mótstöðu við innrásarliðið og andspyrnuhreyfingin átti síðan stóran hlut að máli.
BOPA samtökin voru stórtæk í árásum m.a. á danskar verksmiðjur þar sem fram fór starfsemi sem gagnaðist þýska innrásarliðinu og þýska hernum í heild, en lengi framan af styrjöldinni voru Danir taldir leppríki Þjóðverja fremur en nokkuð annað. Það breyttist með skipulagðri andspyrnu nokkurra samtaka, þar á meðal BOPA.
Samtökin áttu á tímabili líka í baráttu við dönsk yfirvöld og lögregluna sem gekk erinda óvinarins. Ejler Borch segist enn þann dag í dag eiga erfitt með að skilja hvað á gekk innan lögreglunnar en fagnar því að mörgum samverkamönnum þýska hersins var refsað að stríði loknu.
Ejler Borch segir lífið hafa farið vel með sig og hann er stoltur af þátttöku sinni í BOPA. Hann var lengi til sjós sem vélstjóri og hefur komið víða við á langri ævi.
Félagarnir hafa týnt tölunni einn af öðrum og í dag er hann eini eftirlifandi BOPA-maðurinn sem sagt getur sagt frá tímum andspyrnuhreyfingarinnar þar sem óþjálfaðir danskir unglingar buðu þýska herveldinu birginn.