Novaja Gazeta hættir starfsemi vegna þrýstings yfirvalda
Aðalritstjóri Novaja Gazeta segir rússnesk yfirvöld hafa þvingað ritstjórnina til að hætta, eftir húsleit hjá honum og handtöku blaðamannsins Olegs Roldugins. „9. nóvember slökkvum við ljósin á heimili okkar“, segir Sergej Sokolov um blaðið sem hefur starfað í 30 ár.
Óháða rússneska dagblaðið Novaja Gazeta tilkynnti í dag að það hætti starfsemi. Blaðið vísaði til þrýstings frá yfirvöldum, sem gerðu nýlega húsleit hjá einum af æðstu ritstjórum þess og handtóku einn blaðamanna þess fyrr á árinu.
„Novaja Gazeta hættir að vera til,“ sagði Sergej Sokolov, aðalritstjóri blaðsins, í myndskeiði sem birt var á YouTube. „Rússnesk yfirvöld – rússnesku leyniþjónusturnar – hafa þvingað ritstjórnina til að hætta störfum.“
Eftir að Rússar sendu herlið til Úkraínu hafa þeir komið á ritskoðun sem líkist því sem tíðkaðist í Sovétríkjunum. Langflestir óháðir blaðamenn hafa hrakist í útlegð.
Novaja Gazeta hefur verið eitt helsta vígi óháðrar blaðamennsku í Rússlandi. Rússnesk yfirvöld hafa skilgreint blaðið sem „erlendan erindreka“, stimpil sem þau nota til að þagga niður í andófi.
„Novaja Gazeta hefur verið drepin ... 9. nóvember slökkvum við ljósin á heimili okkar, þar sem við höfum búið í 30 ár. Við …