Fundurinn fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, við Brynjólfsgötu 1 í Reykjavík.
- Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, dósent við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
- Fundarstjóri: Magnús Karl Magnússon, prófessor við Læknadeild HÍ
Dagskrá:
- Viðar Guðjohnsen, lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun – Ólögleg peptíð, dauðans alvara
- Hlíf Hauksdóttir, lyfjafræðingur og eigandi Apótek NOR – Peptíð á mannamáli
- Arna Guðmundsdóttir, innkirtlalæknir hjá Landspítalanum – Peptíð, spennandi framtíð?
- Bjarni Sigurðsson, lyfjafræðingur hjá Heilbrigðisráðuneytinu – Ströng lyfjagjöf nauðsynleg
- Pallborðsumræður. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, verður þátttakandi í pallborðsumræðum ásamt fyrirlesurum.
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og eru á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.