Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, telur húsnæði meðferðarheimilisins Stuðla ekki vera öruggt og sé um óspennandi stað að ræða.
„Það er algjörlega opið aðgengi að þessu húsnæði og það er staðsett eins þar sem maður myndi kannski hýsa eitthvað annað heldur en börn,“ segir Inga.
Þess í stað stefnir hún á að opna nýtt fjölnota úrræði við Vífilsstaðavatn í Garðabæ og vonast til þess að taka fyrstu skóflustunguna á næsta ári.
„Þannig að á meðan svo er þá verða Stuðlar í notkun en mínar vonir standa til þess að það verði ekki nýtt nema fram að þeim tíma að við getum flutt inn í glæsilegt fjölnota meðferðarúrræði fyrir börn.“
Á meðan verið er að byggja nýja húsnæðið hefur öryggisbúnaður verið bættur til muna á Stuðlum og eldvarnarhurðum bætt við. Fyrir tveimur árum lést Geir Örn Jacobsen í bruna á meðferðarstofnuninni.
Þessar fyrirhuguðu breytingar séu þó ekki vegna starfseminnar.
„Starfsemin þar hefur að mörgu leyti verið til algjörrar fyrirmyndar þar sem er í rauninni sérhæfing og mikil fagmennska til þess að taka utan um þessi börn,“ segir Inga.
Hún vonast þó til þess að með nýja úrræðinu geti hún axlað ábyrgð gagnvart hópnum sem nýtir sér slík úrræði.
„Til þess er leikurinn gerður þannig að við munum ekkert spara til þess að geta gert það.“