Lögreglurannsókn er hafin í Skotlandi á heimsóknum bandaríska kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein í boði Andrew Mountbatten-Windsor til Balmoral-kastala í Hálöndunum árið 1999.
Ghislaine Maxwell, lagskona Epsteins, var með í för. Breskir miðlar segja grun leika á að konum hafi verið smyglað inn í kastalann í mansalsskyni. Talsmaður lögreglu segir upplýsingar varðandi heimsóknina hafa borist en að rannsókn sé mjög skammt á veg komin.
„Allar rannsóknir byggja á sönnunargögnum þar sem þarfir þolanda eru í forgrunni. Við myndum aldrei staðfesta nokkur smáatriði í yfirstandandi rannsókn og því væri óviðeigandi að tjá sig frekar um málið,“ segir talsmaður lögreglunnar.
Ljósmyndir úr umfangsmiklu Epstein-skjalasafni bandaríska dómsmálaráðuneytisins sýna prinsinn fyrrverandi og Epstein við skotveiðar skammt frá Balmoral. Karl konungur svipti bróður sinn öllum konunglegum titlum seint á síðasta ári vegna náinna tengsla hans við Epstein.
Prinsinn fyrrverandi var handtekinn grunaður um brot í opinberu starfi í febrúar, grunaður um að deila viðkvæmum trúnaðarupplýsingum með Epstein meðan hann var viðskiptaerindreki Bretlands.
Rannsókn er enn yfirstandandi þótt Mountbatten-Windsor segist ekkert hafa brotið af sér. Viktoría drottning og Albert prins keyptu Balmoral árið 1852 og Elísabet II drottning lést þar haustið 2022.