Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir að róttækir vinstrimenn á Vesturlöndum hafi tekið upp tákn og slagorð með íslamistahreyfingum sem vilji að trúarleg lög, sem gangi gegn vestrænum gildum, móti samfélagið. Í grein í Morgunblaðinu í dag segir Elliði að það sé ekki árás á múslima að spyrja hvers vegna fáni Palestínu sé notaður sem tákn um andóf, vill hann vita hvað tákni þegar fáninn er notaður í kröfugöngu á Íslandi á 1. maí.
Elliði vekur aftur mikil viðbrögð: „Óvinur óvinar míns er ekki endilega vinur minn“