Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar ekki að mæta í eigin persónu á fleiri kosningafundi Repúblikanaflokksins eftir kvöldið í kvöld, heldur ætlar hann að ávarpa mannfjöldann gegnum fjarfundarbúnað.
Með þessu er talið að flokkurinn vilji freista þess að ná til fleiri kjósenda síðustu sólarhringana fyrir þingkosningar á þriðjudag en með því að forsetinn þeytist milli fundarstaða.
Trump hyggst þó ávarpa kosningasamkomu á Daytona-strönd í Flórída í kvöld. Forsetinn hóf mikla yfirferð um landið snemma í október með það markmið að auka möguleika á sigri Repúblikana í kosningunum.
Bandarískir miðlar segja að löng ferðalög og mikil ræðuhöld séu tekin að taka sinn toll af heilsu forsetans sem varð áttræður í sumar.
Meðal annars hefur hann mismælt sig talsvert, gefið frá sér undarleg hljóð og röddin orðið hás. Aðspurður sagði hann hæsina vera vegna þess að hann hefði hrópað á fólk sem viðhafði heimskuleg ummæli.
Mælingar sýna aðafstaða kjósenda til forsetans verður neikvæðari með hverjum deginum sem líður. Það er Repúblikönum áhyggjuefni. Stjórnmálaskýrendur telja afstöðuna ekki síst skýrast af háu orkuverði, mikilli verðbólgu og meðfylgjandi hækkun framfærslukostnaðar sem bitnar mjög á afkomu almennings.