Þá verður sagt frá nýju verkefni, en forstjóri Orkuveitunnar segir að Sorpbrennsla muni hefja rekstur hér á landi á næstu tíu til fimmtán árum. Verkefnið muni kosta marga milljarða og gæti sorpbrennslustöðin risið í grennd við íbúðarbyggð eins og tíðkast víða.
Mennta- og barnamálaráðherra vill loka meðferðarheimilinu Stuðlum um leið og nýtt hús í Garðabæ verður tilbúið. Starfsemin sé til fyrirmyndar en húsnæðið óöruggt.
Miðflokksins segir umræðu sem skapaðist um regnbogafánana í vor hafa komið á óvart. Allir eigi að fá frelsi til að vera eins og þeir eru en formaðurinn segir að hópar telji fánana þvingandi og útilokandi og hættu á að þeir ýti börnum út í eitthvað trend eins og hann orðar það í ítarlegu viðtali á Vísi, en hann tjáði sig ekkert um fánamálið á sínum tíma. Við grípum niður í áhugavert viðtal Elísabetar Ingu í Sætinu við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins.
Netöryggissérfræðingur segir rekjanleika rafmyntar nánast engan og því í raun útilokað að ná einhverju tilbaka af þeim fjármunum sem tölvuþrjótar stálu í því sem kallað hefur verið "stærsta tölvuinnbroti sögunnar". Rafmyntakauphöllin Binance greindi frá því í gær að stór hluti eigna þeirra hefði horfið í árásar á tölvukerfi þeirra.
Fjallað verður um þessi mál og fleiri í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf og einnig mæti Henry Birgir með sportið, nóg að gerast þar, hasar á Króknum og hreyfingar á leikmannamarkaði Bestu deildar karla. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.