Vísir fjallaði í síðustu viku um tillögu sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar lögðu fram á fundi menningarráðs þann 21. október þess efnis að kannað yrði hvort mætti veita sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur og samnýtingu við skólabókasöfn.
Afgreiðslu tillögunnar var frestað og því hvorki búið að samþykkja hana né hafna. Í tillögunni er lagt til að fjöldi og staðsetning útibúa verði metin og skoða eigi sameiningar og samnýtingu húsnæðis, aðstöðu og starfsfólks með skólabókasöfnum. Markmiðið sé að ná fram hagræðingu án þess að skerða aðgengi að bókasafnsþjónustu.
Tillöguflytjendur vilja bera saman rekstrar- og húsnæðiskostnað útibúa, aðsókn, útlán, opnunartíma og nýtingu húsnæðis. Sérstaklega verði reiknaður kostnaður á hvern gest og hvert útlán. Orðalag tillögunnar um að kanna ætti hvort fækka mætti útibúum fór fyrir brjóstið á mörgum og flykktist fólk á samfélagsmiðla til að gagnrýna tillöguna.
Sjá einnig: „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“
Rúnar Frey Gíslason, formaður menningarráðs, sagði í samtali við Vísi síðastliðinn föstudag að hugmyndin að baki tillögunni væri að efla bókasöfnin. Ekkert kæmi fram í tillögunni um að minnka ætti þjónustuna heldur ætti þvert á móti að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar.
Blaðamaður Vísis sendi í kjölfar fregnanna spurningar á alla 23 sitjandi borgarfulltrúa í Reykjavík til að forvitnast hvort þeir ættu bókasafnskort, hvert væri þeirra hverfisbókasafn, hvenær þeir hefðu síðast farið á bókasafn og hvað þeir hefðu lesið síðast.
Svör bárust frá tuttugu borgarfulltrúum en þeir sem svöruðu ekki voru Brynjar Níelsson og Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir í Sjálfstæðisflokki og Silja Sóley Birgisdóttir í Sósíalistaflokki.
Ýmislegt kemur fram í svörum borgarfulltrúanna, meðal annars að hátt hlutfall borgarfulltrúa á bókasafnskort. Af þeim tuttugu sem svöruðu eru fimmtán með bókasafnskort, 75 prósent, sem hlýtur að teljast nokkuð gott.