Árekstri.is bárust tíu aðstoðarbeiðnir vegna árekstra milli klukkan átta og níu í morgun, þar af nokkra þriggja og fjögurra bíla árekstra þar sem bílar voru óökufærir á eftir.
„Það sem kom okkur á óvart var hversu margir eru enn á sumardekkjum,“ segir Kristján Kristjánsson, framkvæmdastjóri Áreksturs.is.
Næstum allir árekstrarnir urðu í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins.
„Það var töluvert um harða árekstra þar sem þurfti að draga bíla í burtu ónýta eftir þetta. Það voru þarna alltof margir á sumardekkjum.“
Einn áreksturinn sem Árekstur sinnti varð fyrir framan hjólbarðaverkstæði.
„Þeir töluðu við okkur á dekkjaverkstæðinu og sögðu að þeir hefðu séð töluvert um að fólk hafi verið að afbóka tíma í dekkjaskipti þar sem það hefði ekki verið snjór í kortunum. En ég hvet ökumenn til að drífa í þessu. Það er enginn betri tími en núna og greinilega þörf fyrir að skipta úr sumardekkjum yfir á vetrardekk,“ segir Kristján.