Sergei Sokolov ritstjóri sagði í tilkynningu sem birt var á Youtube í morgun að dagblaðið hefði ekki dáið, það hefði verið drepið og stjórnarskrá Rússlands hefði verið drepin með því. Hún á að banna ritskoðun í Rússlandi. Sokolov sagði að rússneska ríkið og starfsmenn öryggisstofnana hefðu gert reksturinn ómögulegan.
Texti yfirlýsingar hans var einnig birtur á vef Novaya Gazeta.
Novaya Gazeta var stofnað árið 1993, eftir fall Sovétríkjanna og var um árabil eitt virtasta dagblað Rússlands. Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, gaf hluta af verðlaunafénu sem hann fékk með Friðarverðlaunum Nóbels til að hjálpa við stofnun dagblaðsins, eins og fram kemur í frétt AFP-fréttaveitunnar.
Ritstjórn blaðsins veigraði sér aldrei við því að fjalla með gagnrýnum hætti um rússneska ríkið og mannréttindabrot í Rússlandi.
Í gegnum árin hafa nokkrir blaðamenn miðilsins verið myrtir. Þar á meðal er Anna Politkovskaya, sem var þá að rannsaka mannréttindabrot rússneskra hermanna í Téténíu. Hún fannst látin í fjölbýlishúsinu sem hún bjó í á afmælisdegi Vladimírs Pútín.
Árið 2021 fékk Dmitry Muratov, stofnandi og fyrrverandi ritstjóri miðilsins, Friðarverðlaunin fyrir störf sín. Hann tileinkaði þau þeim sex blaðamönnum hans sem hafa verið myrtir í Rússlandi.
„Igor Domnikov, Yuri Shchekochikhin, Anna Politkovskaya, Stas Markelov, Anastasia Baburova, Natasha Estemirova. Þetta er fólkið sem vann friðarverðlaun Nóbels,“ sagði Muratov þegar hann fékk verðlaunin.
Tveimur árum síðar var Muratov skilgreindur af yfirvöldum í Rússlandi sem útsendari erlends ríkis og þurfti hann að láta af störfum og flýja úr landi. Margir úr ritstjórn Novaya Gazeta fóru þá til Lettlands og stofnuðu Novaya Gazeta Europe, sem er enn starfrækt.
Sjá einnig: Lokað á Novaya Gazeta í Rússlandi
Þá tók Sokolov við rekstrinum og hefur reynt að halda dagblaðinu gangandi síðan.
Hafa beitt umdeildum lögum gegn fjölmörgum
Síðan innrásin í Úkraínu hófst árið 2022 hafa yfirvöld í Rússlandi gert tugum félagasamtaka, fjölmiðla og einstaklinga ómögulegt að starfa í Rússlandi á grunni laga um útsendara erlendra ríkja og laga sem meina gagnrýni á rússneska herinn.
Sjá einnig: Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur sagt fyrrnefndu lögin, lögin um útsendarana, vera brot gegn tjáningar- og samkomufrelsi.
Sjá einnig: Telur rússnesk lög um erlenda útsendara stríða gegn mannréttindum
Þeir sem hafa verið skilgreindir sem útsendarar erlendra ríkja hafa meðal annars þurft að merkja allt efni frá þeim sérstaklega. Þeim er meinað að taka þátt í kosningum og að tjá sig með eðlilegum hætti. Þá er þeim gert mjög erfitt að afla tekna.
Sjá má hvernig blaðamenn Novaya Gazeta hafa þurft að merkja efni sitt efst í yfirlýsingunni um lokun miðilsins. Þar segir að efnið sé eingöngu ætlað þeim sem eru eldrei en átján ára og að það sé framleitt af útsendara erlends ríkis.
Í yfirlýsingu sinni rifjar Sokolov upp allar þær aðgerðir sem rússneska ríkið beitti gegn Novaya Gazeta á undanförnum árum. Þá sagði hann frá því að í september hafi allir starfsmenn dagblaðsins verið skilgreindir sem útsendarar erlendra ríkja. Um væri að ræða rúmlega hundrað manns.
Það virðist hafa verið síðasti nagli í líkkistu dagblaðsins.