Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er síður en svo sáttur við nýjustu skýrslu Viðskiptaráðs um raforkuframleiðslu, finnur hann tillögum ráðsins allt til foráttu og segir að fyrirtækin sem standi að baki ráðinu eigi að skammast sín. Líkt og greint var frá í gær er það mat Viðskiptaráðs að Ísland geti rúmlega tvöfaldað raforkuframleiðslu sína fyrir árið 2040. Framleiðslan hafi staðið í stað í tæpan áratug og með því að nýta meiri orku þá sé hægt að bæta lífskjör.
Andri Snær: „Viðskiptaráð eru svo miklir apaheilar að maður gæti sprungið“ – „Talibanar að sprengja styttur hagfræði“