Fyrrverandi borgarstjóri Berlínar segir að auðvelt yrði að kúga Elif Eralp, tilvonandi borgarstjóra Berlínar, ef heimildir fjölmiðla eru réttar. Þýska tímaritið Der Spiegel birti í gærmorgun innri athugasemdir hennar til starfsfólks síns, þar sem fram kemur að hún þori ekki að gagnrýna nafngreindan stuðningsmann hryðjuverkasamtaka opinberlega, af ótta við að stofna sér og fjölskyldu sinni í hættu.
„Það myndi þýða að hægt væri að kúga borgarstjórann,“ sagði Michael Müller, fyrrverandi borgarstjóri úr röðum Jafnaðarmannaflokksins SPD, um að hún þyrði ekki að nefna skýrt í viðtali hverju hún vildi berjast gegn.
Eralp er oddviti Vinstriflokksins Die Linke í Berlín, sem vann sögulegan sigur í kosningum í september. Hún verður borgarstjóri ef flokkurinn myndar stjórn með SPD og Græningjum.
Strikaði út spurningu um íslamskan öfgamann
Í viðtalinu sagðist Eralp ekki hafa gert sér grein fyrir umfangi gyðingahaturs innan flokksins og að farið hefði verið yfir strikið á einstökum viðburðum í kosningabaráttunni. Spiegel spurði þá hvort hún ætti við Ibrahim Ibrahim, sem hefði kallað aðalskipuleggjanda árásar Hamas á Ísrael 7. október 2023 píslarvottshetju og sést á kosningavöku flokksins í hverfinu Neukölln. Hún svaraði játandi.
Ibrahim er sagður hafa lengi starfað með PFLP, Alþýðufylkingunni fyrir frelsun Palestínu, sem er á hryðjuverkalista Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.
Þegar talsmaður Eralp sendi viðtalið til baka til samþykktar var spurningin og svarið strikað út. Í skjalinu voru þó enn innri athugasemdir hennar. Þar skrifaði hún að rannsóknarlögreglan hefði á sínum tíma ráðlagt henni að nefna aldrei nein nöfn. „Þá snerist það um skipulagða glæpastarfsemi. Núna snýst það um fólk með tengsl við Hamas. Ég get ekki stofnað mér og fjölskyldu minni í hættu fyrir Spiegel,“ skrifaði hún og spurði hvort hægt væri að hætta við allt viðtalið.
Segist ekki láta neinn hræða sig
Eftir mistökin segist Eralp ekki láta neinn hræða sig og að eðlilegt sé að hafa áhyggjur af fjölskyldu sinni. Talsmaður hennar segir hana hafa mánuðum saman sætt hótunum nær daglega. Hún stefnir þó enn á borgarstjórastólinn.
Stefan Evers, borgarstjóraefni Kristilegra demókrata, spurði hvernig hún ætti að tryggja öryggi milljóna manna ef hún óttaðist sjálf íslamíska öfgamenn í kringum eigin flokk. Hann hvetur SPD og Græningja til að hætta viðræðum við flokkinn, en flokksþing Vinstriflokksins tekur afstöðu til málsins á laugardag.