Donald Trump Bandaríkjaforseti er kominn til höfuðborgar Kína, Beijing, og fundar á morgun með forseta landsins, Xi Jinping. Þetta er í fyrsta sinn í nær áratug sem forseti Bandaríkjanna heimsækir Kína.
Með Trump í för eru Elon Musk, hæstráðandi Tesla, og Jensen Huang, framkvæmdastjóri Nvidia. Í þjóðaröryggisskyni hafa stjórnvöld í Bandaríkjunum bannað Kína að kaupa tölvuflögur sem fyrirtækið framleiðir og nýttar eru í gervigreind.
Hlaut hlýjar móttökur í Beijing
Trump og sendinefnd hans hlutu hlýjar móttökur við komuna til Beijing í morgun. Rauðum dregli var rúllað út og Trump fékk afhent blóm við komuna. Meðfram rauða dreglinum stóðu um 300 börn sem veifuðu litlum fánum ríkjanna.
Trump skrifaði á samfélagsmiðla á leiðinni að hann ætlaði að biðja Xi forseta Kína að opna landið svo að „allt snjalla fólkið sem þar byggi gæti nýtt hæfileika sína“.
Viðræður um tolla og Íran líklega á dagskránni
Búist er við að Xi og Trump ræði um Íran, viðskipti og stöðu Taívans á fundi sínum. Áður hafði staðið til að Trump færi til Kína í mars en þeirri ferð var frestað eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran. Íranir selja stóran hluta af olíu sinni til Kína. Áður en Trump lagði af stað í gær sagði hann við fréttamenn að hann teldi að Bandaríkin þyrftu ekki neina aðstoð frá Kína í deilunni við Íran.
Eins er talið að viðskipti verði ofarlega á dagskrá leiðtoganna. Trump setti háa tolla á Kína í fyrra sem stjórnvöld þar svöruðu með hækkuðum tollum á innflutning frá Bandaríkjunum. Tollarnir fóru á tímabili yfir 100 prósent. Talið er að leiðtogarnir ræði um að framlengja samkomulag um vopnahlé í tollastríðinu sem þeir undirrituðu á fundi sínum í Suður-Kóreu í október.
Skoða sögufræga byggingu og drekka saman te
Auk fundarins með Xi er einnig á dagskrá Trumps heimsókn í Himnahofið, eina þekktustu byggingu Kína. Þá snæða leiðtogarnir saman kvöldverð á morgun. Á föstudag ætla þeir að drekka saman te og borða hádegisverð áður en Trump leggur í hann aftur til Bandaríkjanna.
Fram kemur í tilkynningu utanríkisráðuneytis Kína að stjórnvöld fagni heimsókninni og séu reiðubúin að auka samvinnu á ýmsum sviðum og takast á við ágreining.