Landsmótið á Hólum fer fram í Hjaltadal dagana 5. til 11. júlí en það er Hestamannafélagið Skagfirðingur sem heldur mótið. Fyrstu drög að dagskrá landsmótsins hafa verið birt á heimasíðu mótsins en þar má finna tímasetta keppnis- og sýningardagskrá fyrir mótið.
Hestamenn landsins eru orðnir mjög spenntir fyrir mótinu, Bergur Jónsson í Syðri-Gegnishólum í Flóahreppi er einn þeirra.
„Ég hef heyrt talað um að það sé búið að selja gríðarlega mikið af miðum og veðrið verður gott, það er fallegt í Skagafirði. Skagfirðingar eru höfðingjar heim að sækja. Mér þykir vænt um Skagfirðinga og það er alltaf gaman að koma í Skagafjörð,” segir Bergur.
Hulda Gústafsdóttir á hestabúgarðinum Árbakka í Holta- og Landsveit í Rangárþingi ytra er líka mjög spennt fyrir landsmótinu.
„Það er svona gluggi fyrir ræktendur og fyrir þjálfara og það hefur alltaf mikla þýðingu og er náttúrulega einn stærsti viðburður í íslandshestamennskunnar eða er stærsti viðburðurinn í íslandshestamennskunni,” segir Hulda en á milli 15 og 20 hross frá búinu munu keppa á landsmótinu.
„Já, okkur sýnist það, við vorum einmitt að telja í gegnum þetta í gær og þetta stefnir í það að vera einhvers staðar upp undir 20 hross,” segir Hulda.
En hvernig er staða hestamennskunnar á Íslandi eins og hún er í dag að mati Huldu?
„Ég er mjög bjartsýn fyrir hönd hestamennskunnar, já. Gæðin eru að batna í öllu saman, gæðin í hrossunum, gæðin í þjálfuninni, gæðin í reiðmennskunni og bara áhuginn yfir höfuð, sem sést hér á mótahaldi og kennslu og öllu saman. Þannig að það er enginn bilbugur á mér,” segir Hulda.