Aðgerðasinninn Paul Watson boðar komu sína til Íslands og framhald á aðgerðum sínum frá 1986 þegar þáverandi samtök hans sökktu hvalveiðiskipum í Reykjavíkurhöfn.Watson segir að skip hans Bandero komi til Íslands um helgina. „Þetta sumar verður sögufrægt og [Kristján] Loftsson mun ekki fá sinn ólöglega kvóta af hval,“ segir hann. „Þetta stríð við Ísland hefur verið háð í fjóra áratugi. Nú er tími til að ljúka því.“
Watson svarar Sveini og frétt DV – „Þessi gamli maður er samt yngri en Kristján Loftsson“