Konur geta nú erft krúnuna í furstadæminu Liechtenstein eftir lagabreytingu sem tilkynnt var um á þjóðhátíðardegi landsins í gær. Erfðaprinsinn Alois greindi frá því að lögum um erfðaröð verði breytt innan tíðar og sagði að tveir þriðju furstafjölskyldunnar hefðu samþykkt þessa breytingu. Frumburðurinn erfir krúnuna, óháð kyni.
Furstinn Hans-Adam II er þjóðhöfðingi landsins. Erfðaprinsinn Alois, elsti sonur hans er 58 ára og tilvonandi fursti. Hann heur gegnt flestum opinberum skyldum síðustu tvo áratugi.
Næstur í erfðaröðinni er Joseph Wenzel prins, sem er elstur fjögurra barna Alois og er 31 árs gamall. Tíminn mun svo leiða í ljós hvort hann eignist fursta eða fyrstu furstynju af Liecthenstein.
Konur fengu kosningarétt árið 1984
Um 44.000 búa í Liechtenstein sem liggur á milli Sviss og Austurríkis. Þjóðin er sögð íhaldssöm og var til að mynda síðasta landið í Evrópu til að veita konum kosningarétt, árið 1984. Sú lagabreyting var samþykkt með naumum meirihluta atkvæða en furstinn Hans-Adam II, studdi kosningarétt kvenna.
Brigitte Haas varð fyrst kvenna forsætisráðherra landsins á síðasta ári. Furstinn er þó valdamesti maðurinn í Liechtenstein og getur rekið ríkisstjórnina kjósi hann svo og beitt neitunarvaldi á lög.
Lög um erfðaröð og kyn eru breytileg milli konungsríkja í Evrópu. Til að mynda var lögum um erfðaröð krúnunnar breytt í Bretlandi árið 2011 og árið 1990 í Noregi. Í báðum löndum er frumburðurinn erfingi krúnunnar, óháð kyni.