Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fer hörðum orðum um Hildi Sverrisdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, í pistli á Facebook-síðu sinni. Skrifin hafa vakið nokkur viðbrögð og er Össur meðal annars sakaður um karlrembu.Össur sagði að Hildur hefði rokið upp á nef sér þegar Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra talaði tæpitungulaust um ábyrgðarlausa fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins síðustu sjö árin áður en ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum.
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu