Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hópi manna í Cornell-háskóla 2024.
Ung kona segir að sjö karlkyns nemendur, félagar í Chi Phi bræðralaginu, hafi byrlað sér ketamín og nauðgað sér. 57 eru sagðir hafa verið þátttakendur í hópspjalli þar sem fjallað var um þetta en enginn brugðist við.
Málið hefur vakið mikla athygli síðustu daga eftir að konan höfðaði mál vegna þess að mennirnir voru ekki sóttir til saka á sínum tíma.
Hochul ríkisstjóri sagði í gær að ákvörðun ákæruvaldsins í Tompkins-sýslu, þar sem skólinn er, um að ákæra mennina ekki græfi undan trausti sínu á getu embættisins til að taka á slíkum málum.
Lögregla og saksóknarar hafi brugðist þolandanum.
Hochul fyrirskipaði James að rannsaka ásakanir konunnar og ákæra mennina ef efni væru til. Hún sagði ungu konuna eiga rétt á að vita að allar staðreyndir yrðu rannsakaðar og að réttlætið ætti að ráða för.
James sagðist reiðubúin að stýra rannsókninni með hliðsjón af staðreyndum og lagabókstaf.
James er með þekktari saksóknurum Bandaríkjanna eftir að hún stefndi Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir fjársvik. Hann var dæmdur til bótagreiðslu en hún síðar felld niður.
Trump hefur farið ófögrum orðum um James og var hún saksótt af dómsmálaráðuneytinu á seinna kjörtímabili hans sem forseti. Dómstóll vísaði þeirri ákæru frá dómi.