Enginn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins eins og stendur.
Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Lögregla fór fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur þann 28. september en það rann út í dag.
Agnes segir að rannsóknin haldi áfram en ágætlega hafi gengið að safna saman þeim gögnum sem liggja undir. Ekki var talin ástæða til framlengja gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur. Ekki var talið að það myndi stefna rannsóknarhagsmunum í hættu.
Um verulega umfangsmikið mál sé að ræða sem þurfi töluverðan tíma til að rannsaka.
Alls voru sautján manns handteknir 22. september. Sex þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudagsins 25. september. Þrír af þeim sex voru síðan úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald.
Lögreglan hefur gert húsleit á nokkrum stöðum og lagt hald á peninga, fíkniefni og fleiri muni.