Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þvertekur fyrir að ósætti hafi verið á milli hans og Harðar Arnarsonar sem lét í gær af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar.
„Alls ekki, ég ber mikla virðingu fyrir Herði Arnarsyni og tel að hann hafi unnið geysilega mikilvægt starf í þágu íslensku þjóðarinnar frá því hann tók við Landsvirkjun,“ segir Daði Már. Hörður tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009 og telur Daði Már að hann hafi verið lykilmaður í að snúa rekstri fyrirtækisins inn á þá braut sem það sé á í dag.
Afsögn Harðar sé hans ákvörðun og hann virði hana. „Það var komið að síðari hluta ferils hans, við vissum að hans samningur rynni út á næsta ári ef ég man rétt,“ segir hann.
Hækkun á arðgreiðslum ekki ástæða afsagnarinnar
Aðspurður hvaða ágreiningur hafi verið á milli Harðar og stjórnar Landsvirkjunar segist Daði Már fremur telja að um áherslumun hafi verið að ræða.
„En ég held að það sé betra að þú ræðir það við stjórnina, þetta eru engin einstök atriði og svo sannarlega ekkert sem snýr að fjármálaráðuneytinu,“ segir Daði Már.
„Mér hefur fundist stjórnin taka skynsamlega á málum og sinna af mjög mikilli trúmennsku því hlutverki að gæta hagsmuna íslensku þjóðarinnar,“ segir hann.
Ekkert sé hæft í því að afsögn Harðar hafi tengst kröfu ríkisstjórnarinnar um hærri arðgreiðslur frá Landsvirkjun.
„Arðgreiðslan var samþykkt með hans samþykki í vor á sama tíma og gerðar voru breytingar á arðgreiðslustefnum eiginlega allra ríkisfyrirtækjanna, þannig að það er ekkert hæft í því,“ segir Daði Már. Þá sé heldur ekkert hæft í því að selja hafi átt hlut í Landsvirkjun. Daði Már fullyrðir að það verði ekki tekið fyrir á valdatíma núverandi ríkisstjórnar.