Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir breytingar á aðalskipulagi hafa orðið til þess að 20 manns var sagt upp hjá fiskvinnslunni Premium of Iceland. 38 störfuðu hjá fyrirtækinu Premium of Iceland í upphafi árs.
Að sögn Vilhjálms var aðalskipulagi í Reykjanesbæ breytt og um leið gerðar breytingar á því hvernig fyrirtæki sækja um starfsleyfi og hvernig þau tilkynna starfsemi sína.
„Stjórnsýslan hefur ekki enn þá fundið almennilega út úr því hvernig á að leysa úr þessum málum og það hefur skapað þessa flækju. Þannig að þetta er svona stjórnsýslulegt úrlausnarefni sem við höfum verið í virku samtali um við marga aðila innan stjórnsýslunnar,“ segir Vilhjálmur.
„Ég á von á því að við finnum einhverja lausn á því núna á næstunni.“
Starfsmönnunum var sagt upp eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði því að fella úr gildi dagsektir upp á 50 þúsund krónur á fyrirtækið.
Heilbrigðisnefnd Suðurnesja lagði sektirnar á Premium of Iceland og giltu þær þangað til starfsemi var stöðvuð. Fyrirtækinu var synjað um skráningu af heilbrigðisnefnd Suðurnesja í desember 2025.
Einhver ár í að uppbygging hefjist
Í framtíðinni er gert ráð fyrir að íbúðarhúsnæði rísi víða á strandlengjunni frá Vatnsnesi að Njarðvíkurhöfn. Premium of Iceland sagði að á fundi með Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja hefði komið fram að um 74 fyrirtæki gætu orðið fyrir áhrifum.
„Það fer eftir tegund starfseminnar hversu mikil áhrif þetta getur mögulega haft, en vissulega er skipulagssvæðið sem var breytt í svokallað víkjandi skipulag mjög stórt svæði og þar starfa mörg fyrirtæki,“ segir Vilhjálmur.
Betra hefði verið ef gert hefði verið ráð fyrir því að starfsemi gæti haldið áfram þangað til uppbygging hefst og að þess hefði verið getið í skipulagslýsingu.