Greint var frá því á Vísi þann 10. september síðastliðinn að kona hefði fætt barn á bílastæði fyrir utan verslun Elko í Skeifunni í Reykjavík. Þá var haft eftir varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins að tveir bílar hefðu verið sendir á staðinn eftir að tilkynning barst um fæðingu utandyra.
Einni eða tveimur mínútum áður en sjúkraflutningamenn komu á staðinn barst önnur tilkynning um að barnið væri fætt og var það grátandi þegar slökkviliðsmenn mættu á svæðið.
„Það eru nú alltaf svolítið góð hljóð að heyra. Svo fórum við í það að sinna móður og barni og koma því í bíl. Þetta var fólk af erlendu bergi brotið og það voru smá tungumálaerfiðleikar en þetta leystist allt saman,“ sagði Sigurjón Hendriksson varðstjóri í samtali við Vísi þá.
Þar er þó aðeins hálf sagan sögð. Samkvæmt heimildum fréttastofu vildi eiginmaður konunnar ekki að karlkyns sjúkraflutningamenn sinntu konu hans í kjölfar fæðingarinnar heldur aðeins að kvenkyns sjúkraflutningamaður sem var á vettvangi veitti konunni aðstoð.
Viðbrögð eiginmannsins eiga samkvæmt heimildum fréttastofu rætur sínar að rekja til mismunandi menningarheima. Í sumum íhaldssömum trúarsamfélögum er talið að konur eigi helst að njóta umönnunar kvenkyns heilbrigðisstarfsfólks þó að einnig sé hefð fyrir því að í neyð gangi varðveisla lífs og heilsu fyrir, til að mynda ef kvenkyns starfsmaður er ekki til staðar.
„Þarna var hægt að leysa málið á annan hátt“
Birgir Finnsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við fréttastofu að ákveðið atriði hafi komið upp í umræddu útkalli sem þurft hafi að vinna með. Það hafi þó verið leyst á vettvangi.
„Við erum að sinna alls konar fólki í alls konar stöðu og það þarf alltaf að mæta því á þeirra forsendum. Málið var leyst mjög fagmannlega af okkar fólki,“ segir Birgir og bætir við að hvorki kona né barn hafi verið í hættu.
„Það eru ákveðin lög í landinu og ef menn hefðu talið að þarna hefði öllu máli skipt hver væri að sinna viðkomandi aðila, þá hefðu menn brugðist þannig við. Þarna var hægt að leysa málið á annan hátt.“
Sjúkraflutningamenn mæti fólki í ýmsum aðstæðum
Birgir tekur einnig fram að sjúkraflutningamenn hafi vissulega lent í atvikum þar sem óskað er eftir aðstoð lögreglu.
„Bara vegna þess að vettvangurinn er ekki alveg öruggur, án þess að ég sé að líkja því saman. Stundum eru menn í slagsmálum og þarf einhver að grípa inn í til þess að við getum sinnt þeim sem er slasaður. Þá taka landslög yfir og þá þarf inngrip lögreglu til þess að hægt sé að sinna sjúklingum eins og okkur ber samkvæmt lögum.“
Í nóvember voru starfsmannafundir hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þar sem atvikið var á meðal þess sem rætt var.
„Við fengum utanaðkomandi aðila með fræðslu um fjölmenningu í víðum skilningi. Við mætum fólki í ýmsum aðstæðum og reynum að leysa úr því fagmannlega í hverju tilviki. Þetta snýst bara um hvernig við mætum og sinnum skjólstæðingum og tökum tillit til þeirra,“ segir Birgir en áréttar að það snúi ekki að því hvaða sjúkraflutningamenn fari í útköll hverju sinni.