Þar ræður Jóhanna Pálmadóttir ríkjum en hún hefur búið á bænum alla sína ævi. Sonur hennar Pálmi Gunnarsson tók við bænum eftir að eiginmaður Jóhönnu og faðir Pálma lést.
Verkefnið var að mála öll húsin á bænum en öll stórfjölskyldan og vinir aðstoðuðu við verkið. Ákveðið var að fara í gamla útlit húsanna, rautt þak og hvítir veggir.
Arnar Guðmundsson múrarameistari var til aðstoðar og tók hann harmonikkuna með í för. Allt saman endaði þetta síðan á heljarinnar partýi en hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti. Allir þættirnir eru aðgengilegir á Sýn+.