Arnhildur birti færslu á Facebook þar sem hún segist hafa skilað inn tillögu til Reykjavíkurborgar um að forhanna og kostnaðarmeta einfalda lausn á stuðningskerfi eða svokölluðu exoskeleton fyrir skyggni stúkunnar við Laugardalslaug. Í sumar var greint frá því að eftir ástandsskoðun hefði orðið ljóst að rífa þyrfti stúkuna vegna alkalískemmda.
Í kjölfarið var fimm heitum pottum, eimbaði og tveimur sérklefum lokað við stúkuna af öryggisástæðum. Í vikunni sagði Steinþór Einarsson, sviðsstjóri menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar, að það lægi fyrir með hvaða hætti væri hægt að rífa hana en enn stæði undirbúningsvinna yfir.
Tillaga Arnhildar spratt upp þar sem hún hefur áður reynt að vekja athygli á því að hægt sé að minnka niðurrif hérlendis. Íslendingar séu duglegir við að „tæta niður byggingar“ í stað þess að hugsa um efnið sem búið er að framleiða auk umhverfisáhrifa.
„Ég fékk smá mótþróa því mér fannst svolítið langt gengið með þetta,“ segir Arnhildur í samtali við fréttastofu.
„Ég lagði fram tillögu um það hvort ég ásamt mínu teymi mætti forhanna og kostnaðarmeta tillögu um hvað þyrfti til að byggingin myndi ekki hrynja.“
Beri virðingu fyrir stúkunni
Arnhildur segist hafa rætt við reynslumikla burðarþolsverkfræðinga sem hafi metið það svo að það væri möguleiki á að setja upp sjálfstætt burðarkerfi sem taki yfir burðarhlutverkið af gömlu skelunum.
„Við gerum okkur grein fyrir hættunni og það er hætta á að þetta gæti hrunið. Það eru steypuskemmdir en við vitum líka að við erum með steypustjóra sem þekkja alkalískemmdir vel,“ segir hún.
Hún tekur skýrt fram að hún beri virðingu fyrir niðurstöðu greininga sem hafi leitt í ljós að rífa þyrfti stúkuna. Hins vegar snúist tillaga þeirra um að nálgast hluti frá öðru sjónarhorni. Það sé fordæmi fyrir slíku en á Ítalíu sé verið að ráðast í álíka framkvæmdir á friðaðri stúku sem byggð var á svipuðum tíma og umrædd stúka í Laugardalnum.
„Við vildum fá að gera samanburðartillögu til að það væri hægt að taka upplýsta ákvörðun.“
Málið fór hins vegar ekki lengra þar sem Reykjavíkurborg var ekki tilbúin að fjármagna vinnuna. Arnhildur segir að ef stúkunni yrði bjargað væri hægt að nýta hana í alls konar starfsemi. Hver hönnuður gæti komið með fjölda hugmynda fengi hann tækifæri til.