Tinna Óðinsdóttir greindi frá þessu fyrr í dag í færslu á samfélagsmiðlum undir yfirskriftinni: „Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“.
„Það er svolítið skrítið að hugsa til þess að heil tíu ár séu liðin. Ég horfi á þessa gömlu mynd og sé svo unga stelpu. Stelpu sem hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar, hversu stórt verkefni hún ætti fyrir höndum og hversu mikil áhrif þessi reynsla myndi hafa á líf hennar. Ekki bara þá, heldur líka öll árin sem á eftir komu,“ skrifar hún í færslunni.
Hún hafi oft reynt að telja sjálfri sér trú um að hún væri búin að vinna úr nauðguninni, væri komin yfir hana og að hún tilheyrði fortíðinni.
„En sannleikurinn er sá að maður kemst kannski ekki bara yfir svona hluti. Maður lærir að lifa með þeim. Maður heldur áfram, vex, breytist og byggir sér líf, en reynslan verður samt einhvers staðar hluti af manni. Þetta hefur mótað mig á ýmsan hátt og haft meiri áhrif á líf mitt en ég gerði mér nokkurn tímann grein fyrir þegar ég var þessi unga stelpa,“ skrifar Tinna.
Dagurinn sé alltaf svolítið þungur hvert ár, kannski vegna þess að hún hugsi um sjálfa sig fyrir tíu árum síðan.
„Hvað hún var ung, hvað hún þurfti að takast á við og hvað mig langar mikið að geta faðmað hana og sagt henni að þetta verði allt í lagi. Í dag langar mig bara að gefa þeirri stelpu smá pláss. Minna mig á hvað hún hefur þurft að ganga í gegnum og hvað hún hefur komist langt. Það sem gerðist skilgreinir mig ekki, en það er hluti af sögu minni. Og það má alveg vera þannig,“ skrifar hún að lokum.
Opnaði sig í MeToo-bylgjunni
Nauðgunin átti sér stað í keppnisferð landsliðsins í Þýskalandi árið 2016 þegar Tinna var 22 ára. Tinna tjáði sig fyrst opinberlega um málið í viðtali við Nútímann árið 2018 í MeToo-bylgjunni í kjölfar þess að margar aðrar íþróttakonur stigu fram og greindu frá kynferðislegri áreitni og ofbeldi sem þær höfðu orðið fyrir í íþróttaheiminum.
Tinna hafði á þeim tíma átt farsælan feril í fimleikum, varð Norðurlandameistari með landsliðinu árið 2016 og var búin að vinna ellefu bikarmeistaratitla í fimleikum.
„Á lokahófinu var ég með mínum vinum og var að hafa gaman. Þetta var síðasta mótið á tímabilinu og við fórum á skemmtistað með öllum keppendum mótsins. Það var mjög gaman og það voru strákar frá öðru landi með okkur sem svo þróaðist út í að þeir buðu okkur stelpunum upp á hótel þar sem að skemmtistaðurinn var að loka,“ sagði Tinna í viðtalinu við Nútímann.
Þær hefðu farið upp á hótel og skemmt sér vel í fyrstu þar til andrúmsloftið gjörbreyttist þegar fólk fór að týnast heim. Á endanum hafi tveir menn haldið henni niðri á meðan sá þriðji nauðgaði henni eftir að hún hafði ítrekað beðið þá um að hætta.
„Það á alveg að vera nóg. Þeir gerðu sér alveg grein fyrir hvað þeir voru að gera. Ég varð alveg máttlaus og ég gerði mér grein fyrir því að ég var ekki að fara að komast neitt í bráð,“ sagði hún í viðtalinu.
Mennirnir hefðu að lokum kastað fötum Tinnu í hana og hent henni í lyftuna. Lýsti hún því í viðtalinu að líf sitt hefði hrunið í kjölfarið. Hún hefði hins vegar fengið mikinn stuðning frá Fimleikasambandinu og buðust til að aðstoða hana ef hún vildi kæra.
Síðustu ár hefur Tinna snúið sér að leik- og tónlist, keppti meðal annars í Idol-stjörnuleit fyrir nokkrum og söng lagið „Þrá“ í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2025 og endaði þar í fimmt sæti af tíu keppendum.
Tinna á tvo drengi með eiginmanni sínum, sjúkraþjálfaranum Stefáni Inga Jóhannssyni, en þau fögnuðu átta ára sambandsafmæli í sumar. Þau ræddu um samband sitt og fyrstu kynni í viðtalsliðnum Makamál á Vísi síðasta sumar.