Fyrirlestur sjaríadómarans Muhammads Taqi Usmani í Stórmoskunni í október vakti umræðu vegna afstöðu hans til þungra refsinga. Ferðafélagi hans, breski trúarfræðimaðurinn Abdur-Rahman Mangera, lýsir Íslandsferðinni og móttökunum í Stórmoskunni í nýrri ferðasögu.
Mangera hefur í trúarúrskurði sagt að eiginmaður hafi rétt til að banna eiginkonu að fara út af heimilinu til vinnu og að meginhlutverk hennar sé að vera móðir og húsfreyja. Hann hefur einnig fjallað um að forðast handaband við konur, meðal annars í tengslum við atvinnuviðtal.
Nú liggja fyrir upplýsingar sem varpa nýju og skýrara ljósi á heimsókn sjaríadómarans Taqi Usmani í Stórmoskuna við Skógarhlíð.
Ég lagðist í smá rannsóknarvinnu vegna heimsóknarinnar og fann m.a. ítarlega ferðasögu breska íslamska trúarfræðimannsins Abdur-Rahman Mangera, sem var… pic.twitter.com/FqfGTLUxV9
— Birkiland (@KingBirkiland) November 17, 2026
Hver er Usmani
Usmani er fyrrverandi dómari við sjaría-áfrýjunardeild Hæstaréttar Pakistans. Hann hélt fyrirlestur í Stórmoskunni 21. október. Morgunblaðið greindi frá því 27. október að hann hefði varið dauðarefsingu fyrir trúarfráhvarf og aflimanir og grýtingu sem refsingar samkvæmt íslömskum rétti.
Samkvæmt blaðinu hafnar Usmani því í skrifum sínum að dauðarefsing fyrir trúarfráhvarf eigi aðeins við þegar því fylgi uppreisn eða hryðjuverk. Trúarfráhvarfið sjálft sé grundvöllur refsingarinnar í íslömsku ríki. Hann telur jafnframt að fastákveðnum trúarlegum refsingum verði hvorki breytt af ráðamönnum, dómurum né löggjafarþingum.
Ferill og menntun Mangera
Mangera er breskur íslamskur trúarfræðimaður, menntaður bæði í hefðbundnum íslömskum fræðum og við vestræna háskóla. Í æviágripi hans á vef Zamzam Academy segir að hann hafi lokið námi við Darul Uloom í Bury á Englandi og sérhæft sig í gerð trúarúrskurða við Mazahir Uloom í Saharanpur á Indlandi.
Hann lauk BA-prófi við háskólann í Jóhannesarborg og meistara- og doktorsprófi í íslömskum fræðum við SOAS, háskólann í London. Hann var ímam í átta ár í Kaliforníu og síðar í meira en fimm ár í London, stofnaði Whitethread Institute, sem sinnir framhaldsnámi í íslömskum fræðum, og kemur að útgáfu hjá White Thread Press. Trúarúrskurðir hans og fyrirlestrar eru meðal annars birtir á vef Zamzam Academy.
Réttur til að banna vinnu utan heimilis
Í svari við spurningu um hvort maður megi banna eiginkonu sinni að vinna segir Mangera að eiginmaður hafi rétt til að banna henni að fara út af heimilinu til vinnu. Svarið er varðveitt á vefnum IslamQA og merkt honum; þar kemur fram að það hafi upphaflega birst á Qibla.com.
Mangera segir aðalhlutverk eiginkonunnar vera að sinna móður- og húsmóðurhlutverki og að eiginmaðurinn beri ábyrgð á framfærslu fjölskyldunnar. Hann eigi því ekki að neyða hana til að afla viðbótartekna.
Hann gerir jafnframt greinarmun á vinnu utan heimilis og vinnu heima. Eiginmaðurinn hafi ekki rétt til að banna henni vinnu eða starfsemi heima, til dæmis á netinu eða með póstpöntunum, svo framarlega sem það skerði ekki réttindi hans.
Vasaklútur í atvinnuviðtali
Í öðru svari frá 2010 er Mangera spurður hvort atvinnuviðtal teljist nægileg nauðsyn til að múslimskur karlmaður taki í hönd konu. Hann fjallar um handaband við konu sem eitthvað sem beri að forðast, en segir að það geti verið leyfilegt ef maðurinn stæði annars á vonarvöl.
Mangera nefnir dæmi um mann sem hann þekki og hafi vasaklút meðferðis þegar slíkar aðstæður gætu komið upp. Að sögn hans geri hinn aðilinn þá ráð fyrir að maðurinn kunni að vera með ofnæmi eða kvef og rétti honum ekki fram höndina.
Hann segir að stundum megi skýra trúarlegar ástæður þess að vilja ekki takast í hendur, en að það sé ekki alltaf skynsamlegt. Hann telji fyrri leiðina betri.
Birkiland vakti athygli á ferðasögunni og þessum úrskurðum á X.
Í gær sagði ég hérna á X-inu frá komu Abdur-Rahman Mangera til Íslands, en ferðasaga hans varpar heldur betur nýju ljósi á heimsókn sjaríadómarans Taqi Usmani í Stórmoskuna við Skógarhlíð.
En nú langar mig að segja aðeins frá býsna skondnu (eða kannski sorglegu, eftir því… pic.twitter.com/KW0R1ayDHd
— Birkiland (@KingBirkiland) November 18, 2026
Samtalið í Stórmoskunni 20. október
Í ferðasögunni segir Mangera að 47 manns hafi verið í hópnum sem kom til Íslands 19. október. Kvöldið 20. október hafi hópurinn farið í moskuna, þar sem hann bað og snæddi kvöldverð.
Að sögn Mangera komu tveir heimamenn síðar að máli við hann og ræddu við hann í einrúmi. Þeir hafi lýst áhyggjum af uppgangi öfgahægri viðhorfa á Íslandi og andrúmsloftinu sem það hefði skapað fyrir múslima.
Mennirnir töldu að sumir múslimar yrðu fyrir mismunun, meðal annars við atvinnuleit. Þeir nefndu einnig mál innan samfélags múslima sem hefðu birst í fjölmiðlum og að þeirra mati ýtt undir neikvæðari ímynd múslima.
Owais Syed frá Kanada
Stórmoskan auglýsti Owais Syed frá Kanada sem gestaprédikara föstudaginn 23. október, tveimur dögum eftir fyrirlestur Usmanis. Samkvæmt auglýsingunni átti prédikunin að hefjast klukkan 13.30 og bænin klukkan 14.00.
Á vef Guiding Light Foundation er Mufti Owais Syed kynntur sem stjórnarmaður samtakanna. Þar segir að hann hafi alist upp í Toronto, lokið MA-prófi í íslömskum fræðum við Darul Uloom Karachi og sérhæft sig í trúarúrskurðum við deild Binori Town-skólans í Karachi sem gefur út slíka úrskurði.
Í ferðasögunni nefnir Mangera ferðafélaga frá Kanada sem hann kallar „Mufti Owais“, án eftirnafns. Nafnið og tengslin við Kanada benda til að þar geti verið átt við sama mann og moskan auglýsti, en það er ekki staðfest.
Í trúarúrskurði sem deild Binori Town-skólans í Karachi birti 2019 er fjallað um refsingar fyrir kynmök karla og meðal annars haft eftir trúarfræðimanni að kasta megi manni af fjalli og grýta hann, eða brenna hann.
Í öðrum úrskurði sama ár segir að kona með næga framfærslu megi ekki vinna utan heimilis til að bæta lífskjör sín eða öðlast fjárhagslegt sjálfstæði, en undantekning er gerð fyrir nauðsynlega kennslu. Ekkert í þeim heimildum sem Nútíminn hefur skoðað sýnir þó að Owais Syed hafi samið úrskurðina sjálfur eða styðji þá þó hann hafi útskrifast frá skólanum.
Bakgrunnur og viðbrögð
Tímaritið TIME greindi árið 2003 frá því að háttsettir talíbanaleiðtogar hefðu stundað nám við Binori Town og að skólinn hefði árum saman verið samkomustaður al-Qaeda manna á leið til Afganistans. Umfjöllunin varðar skólann og tiltekið tímabil, ekki persónulega afstöðu Syeds.
Karim Askari, formaður Stofnunar múslima á Íslandi sem rekur Stórmoskuna, sagði við Vísi 28. október að Usmani hefði komið sem ferðamaður, ekki í opinberri heimsókn, og að bakgrunnur hans hefði ekki verið kannaður fyrir fram. Stofnunin taki ekki sjálfkrafa undir umdeildar skoðanir hans, en hafnaði því þó ekki. Askari sagði jafnframt að moskan virti trúfrelsi og fylgdi íslenskum lögum, og að gripið hefði verið inn í ef Usmani hefði talað fyrir þessum skoðunum í moskunni.