Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir barnavernd ekki hafa gripið nægilega hratt inn í mál þar sem staðfest sé að börn hafi verið vanrækt og misnotuð kynferðislega. Í viðtali í Einni pælingu lýsir hann jafnframt ofbeldi gegn konum með skerðingar sem karlar af erlendum uppruna hafi stofnað til sambands við í þeim tilgangi að tryggja sér landvistarleyfi.
Sævar segir konurnar sæta ofbeldi og hótunum, bæði frá eiginmönnum og mönnum sem tengist þeim. Hann lýsir meðal annars þrýstingi á konu sem vildi skilja og líflátshótun gegn þeim sem reyndi að koma manni af heimili konu. Hann leggur áherslu á að um fleiri en eitt tilvik sé að ræða.
Segir kynferðisofbeldi gegn börnum staðfest
Sævar segir alvarlegasta málið sem hann vísar til snúa að börnum. Þar sé ekki eingöngu um grunsemdir að ræða, heldur staðfest ofbeldi.
Hann segir börnin „ekki bara vanrækt, heldur líka misnotuð kynferðislega“ og gagnrýnir að barnaverndarkerfið grípi ekki nægilega hratt inn í málið.
Ofan á ofbeldið gegn börnunum komi ofbeldi gagnvart konunni á heimilinu. Það sé að hans sögn ekki eingöngu af hálfu eiginmannsins, heldur einnig manna sem tengist honum.
Félagslegt húsnæði notað undir ólöglega starfsemi
Sævar lýsir einnig því að félagslegt húsnæði sem konurnar fái sé misnotað undir ólöglega starfsemi. Hann nefnir ræktun og sölu fíkniefna og vörslu stolinna muna.
Lögregla hafi að hans sögn oft komið að þessum málum vegna fíkniefna eða þýfis. Hann gagnrýnir hins vegar að ekki sé nægilega spurt hvers vegna viðkomandi maður sé á heimilinu eða hvernig aðstæður kvenna og barna séu þar.
Sævar segir barnavernd þurfa að taka á þessum aðstæðum og bætir við að lögreglan sé sem betur fer farin að beita sér meira í málunum.
Þrýst á konu að skilja ekki
Í einu tilvikinu sem Sævar lýsir hafi kona viljað skilja við mann sinn. Þá hafi hópur vina hans, sem komi frá sama landi, sett sig í samband við hana til að fá hana til að hætta við skilnaðinn.
Konurnar sæta að hans sögn miklum hótunum sem snúist ekki aðeins um ofbeldi, heldur einnig líflát.
Hann lýsir öðru tilviki þar sem gefið hafi verið sterklega í skyn að sá sem reyndi að koma í veg fyrir að maður héldi áfram að vera á heimili konu yrði drepinn.
Gagnrýnir barnaskap í umræðunni
Sævar tekur fram að heimilisofbeldi sé þekkt óháð uppruna fólks. Umræðan sem hann beinir sjónum að snúist hins vegar um menn sem stofni til sambands við konur með skerðingar í þeim tilgangi að tryggja sér landvistarleyfi.
Hann telur barnaskap og einföldni einkenna þá hugmynd að slík misnotkun geti ekki átt sér stað á Íslandi. Þetta sé þekkt bæði hér á landi og erlendis.
Sævar áréttar að frásögn hans snúist ekki um eitt einstakt mál:
„Þetta eru mörg tilvik.“